Við lífstílsbreytingar getur það verið gott fyrsta skref að koma í lífsstílsráðgjöf. Einnig er kostur á að koma í eftirfylgni og endurmat hjá hjúkrunarfræðingi til að stuðla að því að langtímaárangur við lífsstílsbreytinguna verði sem bestur.
Lífstílsráðgjöf er sérstaklega ætluð þeim sem vilja taka stöðuna á eigin heilsu og jafnvel taka heilsuna sína í gegn með aðstoð og stuðningi. Í skoðuninni er bæði líkamleg og andleg líðan metin og hjúkrunarfræðingur veitir persónulega ráðgjöf um hvað þarf að gera til að viðhalda og/eða bæta heilsuna.
Hver skoðun er einstaklingsmiðuð. Hjúkrunarfræðingur fer yfir heilsufarssögu og framkvæmir mælingar á eftirfarandi heilsufarsþáttum:
- Blóðþrýstingur
- Púls
- Blóðsykur
- Kólesteról
- Hemóglóbín
- Hæð
- Þyngd
- BMI
- Spirometria
- Andleg vellíðan
- Markmiðasetning
- Hreyfiplan/matarplan
- Heilsueflandi ráðgjöf hjúkrunarfræðings
Í skoðuninni er bæði líkamleg og andleg líðan metin. Hjúkrunarfræðingur veitir persónulega ráðgjöf, sem byggð er á niðurstöðum mælinga og heilsufarssögu, um hvað þarf að gera til að viðhalda og/eða bæta heilsuna.
Hringdu í síma 510 6500 til að panta tíma í skoðun eða sendu okkur fyrirspurn á hv@hv.is ef þú vilt fá nánari upplýsingar.