Farsæl framtíð – Málstofa á vinnustað
Hér er á ferðinni málstofa sem veitir stjórnendum innsýn í sjónarmið og kröfur starfsmanna þegar litið er til breyttrar framtíðar og stefnumótunar í kjölfar covid.
Farsæl framtíð – Málstofa á vinnustað
Í þessu erindi er fjallað um þær áskoranir sem stjórnendur og starfsfólk fást við í kjölfar covid-19 faraldursins. Markmiðið er að vekja þátttakendur til umhugsunar varðandi mannauðsmál er skipta máli þegar horft er til framtíðar nú þegar hjólin eru farin að snúast á ný og breytt landslag er staðreynd flestra fyrirtækja og stofnanna.
Ólík sjónarmið og mismunandi leiðir henta hverjum vinnustað fyrir sig svo reynt verður eftir fremsta megni að ramma framtíð vinnustaðarins inn með tilliti til hentugleika, hagkvæmni og hugsjón.
Dæmi um spurningar sem unnið verður út frá:
- Hvað gekk vel og hvað mátti betur fara á tímum covid?
- Fjarfundir í framtíðinni, undir hvaða kringumstæðum?
- Sveigjanleiki/heimavinna hvað er hentugast og hvaða reglur þarf að móta?
- Hvaða búnaður er í boði?
- Tryggingar þegar unnið er heima fyrir
Og margt fleira.
Vinnulotan veitir stjórnendum innsýn í sjónarmið og kröfur starfsmanna þegar litið er til breyttrar framtíðar og stefnumótunar.
Stjórnandi málstofu: Helga Hrönn Ólafsdóttir, mannauðsfræðingur
Hægt er að velja um:
45 min vinnulotu með mikilli virkni eða 2ja tíma vinnulotu með mikilli virkni
We want to meet the needs of our customers and therefore tailor the service according to each individual's wishes.