Upp og áfram
Erindið er yfirgripsmikið og eflir starfsfólk eftir krefjandi tíma og er hugsað sem orkuinnspýting fyrir hópa.
Upp og áfram
Á námskeiðinu læra þátttakendur rannsakaðar aðferðir til greiningar, forvarna og úrlausna á samskiptaerfiðleikum, samfélagslegri streitu og dræmri tímastjórnun. Fjallað verður um ábyrgð starfsmannsins á stýrðu álagi og álagsþol hans. Þá er fólk hvatt til að þekkja sína streituvalda, afleiðingar sem og leiðir til lausna.
Einnig verður fjallað um hina gagnkvæmu „hollustu“ eða ósýnilega vinnusamninginn. Greinarmunur verður gerður á því hvar ábyrgð starfsmanna liggur sem og stjórnenda, vinnustaðamenningu og hvernig starfsfólk getur aukið afköst sín án þess að auka við streituna.
Farið er í væntingastjórnun, mikilvægi þess að setja sér raunhæfar kröfur sem og það hvernig hægt er að verja orku í stað þess að eyða henni.
Þátttakendur gera stutt einstaklingsverkefni þar sem þeim er gefin betri yfirsýn yfir verkefnin sín og stuðlar það að bættri forgangsröðun í starfi, námi eða daglegu lífi. Að lokum verður kennd hvíldaræfing sem hægt er að framkvæma án fyrirhafnar.
Examples of common questions that will be answered in the course:
- Hvernig næ ég tökunum á ný eftir krefjandi tíma?
- How can I keep my energy even throughout the day?
- Hvað býr að baki hugtaksins ósýnilegi vinnusamningurinn?
- Why has stress and burnout become so common today?
- Is it a condition or a disease?
- How can I thrive at work?
- Hvernig stuðla ég að vellíðan á vinnustað?
- Með hvaða hætti stuðla ég að vandaðri tímastjórnun?
- What to watch out for in time management and prioritization?
Á námskeiðinu er nálgunin sú að streita sé partur af lífinu en ekki alltaf einvörðungu tengd starfi. Við tölum um streitu sem eðlilega þreytu sem lagast við hvíld og að allir geti haldið jafnvægi með hvíld og hreyfingu. Raunin er því sú að veikindögum hefur fækkað hjá þeim sem hafa setið námskeiðið þar sem að fókusinn er á bjargráð, lýðheilsu og forvarnir.
Indicator
Helga Hrönn Óladóttir, mannauðsfræðingur og streituráðgjafi
Length of lecture
60 mín erindi með einstaklingsvinnu
Note: on-site or distance learning
We want to meet the needs of our customers and therefore tailor lectures / seminars and schedules according to the needs of each individual.