Gott starfsumhverfi hefur áhrif á starfsánægju og vellíðan starfsmanna. Úttekt á starfsstöð starfsmanna hefur forvarnargildi sem getur stuðlað að fækkun veikindadaga og fjarvista er tengjast vinnutengdu álagi.
Með úttekt á starfsstöð starfsmanna er leitast við að greina aðstæður í vinnuumhverfi starfsmanna, ásamt því að veita fræðslu og ráðgjöf um það sem betur má fara.
Sjúkraþjálfari fer milli starfsstöðva starfsmanna, skoðar og metur starfsstöð hvers og eins. Aðstæður eru metnar m.t.t. stoðkerfisþátta og vinnuskipulags, stillinga á borðum, stólum, tölvuskjám og öðrum vinnutengdum tækjum.
Starfsmaður fær leiðbeiningar og ráðgjöf varðandi líkamsbeitingu, vinnuskipulag og þætti er lúta að starfsstöðinni almennt.
Nánari upplýsingar fást í síma 510 6500 eða með tölvupósti á netfangið hv@hv.is