4. SEPTEMBER 2019, KL 8:00 – 11:45 Á GRAND HÓTEL
Áskorunin: Minni vinna
Bætt heilsa – aukinn árangur…
Heilsuvernd, Attentus og Sálfræðingarnir
Ráðstefnan á erindi til mannauðsstjóra, stjórnenda skipulagsheilda og aðila sem koma að stjórnunarlegum og heilsufarslegum þáttum starfsmanna.
Á ráðstefnunni voru flutt erindi þar sem sjónum var beint að áhrifum langs vinnutíma á heilsufar en streita og álagstengd veikindi eru æ algengari og kulnun í starfi er víðtækt vandamál. Stjórnendur skipulagsheilda eru því í auknum mæli farin að huga að heilsufari starfsmanna sinna, leita lausna til að draga úr streitu og bæta líðan starfsmanna.
Með tilkomu nýrra kjarasamninga er lögð aukin áhersla á sveigjanleika og styttingu vinnuvikunnar án launaskerðinga. Í lífskjarasamningnum er samið um 45 mínútna styttingu á vinnutíma á viku frá og með 1. janúar 2020. Útfærsla styttingarinnar er í höndum hvers vinnustaðar fyrir sig.
Með styttingu vinnutímans má mögulega draga úr áhrifum langs vinnutíma á heilsufar starfsmanna, stuðla að jafnvægi milli vinnu og einkalífs og þar með auka lífsgæðin.
Þetta eru stjórnunarfarslegar og krefjandi áskoranir sem kalla á útsjónarsemi og hæfni stjórnenda.
Tólin og tækin. Hvaða lausnum og aðferðum er hægt að beita við slíka innleiðingu? Hvað segja mælingar og kannanir þegar horft er til veikindafjarvista, yfirvinnustunda, skilvirkni og árangurs. Hver eru jákvæðu áhrifin og í hverju er ávinningur fólginn varðandi andlega líðan og starfsánægju?
Dagskrá ráðstefnu
8:00-8:30
Móttaka og skráning gesta
8:30
Setning ráðstefnu og opnunarávarp
Ráðstefnustjóri
Sigríður Indriðadóttir, Mannauðsstjóri Íslandspóstur
8:40
LEGO Serious play kynnt til leiks
Birna Kristrún Halldórsdóttir, ráðgjafi
Attentus
8:50
Heilsuefling, forvarnir og vinnuvernd á vinnustöðum (skoða glærur)
Teitur Guðmundsson, læknir og framkvæmdastjóri
Heilsuvernd
9:10
Hvers vegna lendum við í kulnun/örmögnun og hvernig notum við bjargráð og hefjum úrvinnslu? (skoða glærur)
Sigríður Björk Þormar, doktor í sálfræði
Heilsuvernd – Sálfræðingarnir
9:35
Er stytting vinnuvikunnar lausnin? (skoða glærur)
Guðríður Sigurðardóttir, ráðgjafi
Attentus
9:55
LEGO Serious play
Birna Kristrún Halldórsdóttir, ráðgjafi
Attentus
10:15-10:30
Kaffihlé
10:30
Áskorunin séð út frá pól stærri skipulagsheilda (skoða glærur)
Elín Hjálmsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs
Eimskip
10:50
Lífskjarasamningurinn og útfærsla ákvæða (skoða glærur)
Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs
Samtök atvinnulífsins
11:10
Tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar hjá ríkinu – „Merkilegt hvað það munar mikið um þennan hálftíma“ (skoða glærur)
Ása Guðbjörg Ásgeirsdóttir, ráðgjafi
11:30
LEGO Serious play
Birna Kristrún Halldórsdóttir, ráðgjafi
Attentus
11:45
Samantekt og ráðstefnuslit
Ráðstefnustjóri
Sigríður Indriðadóttir, Mannauðsstjóri
Íslandspóstur