STREITUSKÓLINN
Sérfræðingar Streituskólans starfa í fjölfaglegu teymi sérfræðinga og ráðgjafa með fjölbreytta menntun og reynslu. Samstarf er einnig við aðra sérfræðinga Heilsuverndar. Í boði er þjónusta fyrir einstaklinga, fjölskyldur og hópa, vinnustaði, fyrirtæki, stofnanir, bæjar- og sveitarfélög.
Óeðlilegt álag og langvinn streita getur haft alvarleg áhrif á samskipti og líðan og getur í verstu tilfellum valdið kulnun eða sjúklegri streitu. En um leið er vitað að ódýrar og einfaldar aðgerðir geta haft gagnstæð áhrif og bætt stöðuna bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Því er hér frábært tækifæri til forvarna.
Streituskólinn var stofnaður árið 2002 af dr. Ólafi Þór Ævarssyni. Margir öflugir sérfræðingar og ráðgjafar hafa frá upphafi starfað í Streituskólanum og mótað starf hans. Um 10.000 manns í u.þ.b 200 fyrirtækjum hafa fengið fræðslu í Streituskólanum. Forvarnastarf gegn streitu og kulnun er líka góð leið til að bæta samskipti og efla geðheilsu.
ÞJÓNUSTA
EINSTAKLINGAR OG FJÖLSKYLDUR
Sérfræðingar Streituskólans veita sérhæfða ráðgjöf og meðferðarúrræði fyrir einstaklinga, pör og hópa. Verið velkomin.
FYRIRTÆKI – VINNUSTAÐIR
Sérfræðingar Streituskólans taka að sér að þjónusta fyrirtæki og vinnustaði með margþættri ráðgjöf, sérhæfðum úrlausnum og fræðslu.
FRÆÐSLA OG NÁMSKEIÐ
Sérfræðingar Streituskólans bjóða upp á ýmis konar fræðslu og námskeið fyrir einstaklinga og hópa, ásamt sérhæfðari námskeiðum og fræðslu fyrir vinnustaði.
Fræðsla er öflugasta vopn forvarna gegn streitu og vanlíðan hvers konar.
Því eru kjörorð Streituskólans: Fræðsla til forvarna

HAFA SAMBAND
Við leggjum áherslu á að koma á móts við þarfir hvers og eins við þjónustu og ákvörðun meðferðarúrræðis.
Að bóka viðtalstíma
Vinsamlegast fylltu inn formið og gerðu stuttlega grein fyrir vandanum svo líklegra sé að réttur sérfræðingur sé fenginn í málið. Öll gögn sem til okkar berast eru meðhöndluð sem trúnaðarupplýsingar.
Við munum hafa samband við þig hið fyrsta varðandi lausan tíma.
Neyðartilfelli
Ef málið er alvarlegt og þolir ekki bið hvetjum við fólk til þess að hafa samband við bráðamóttöku geðdeildar í síma 543-4050 eða neyðarlínuna 112.
Upplýsingar fyrir skjólstæðing í upphafi meðferðar
Vinsamlegast kynntu þér eftirfarandi upplýsingar fyrir skjólstæðing í upphafi meðferðar og staðfestu með undirskrift þinni.
Sækja Upplýsingablað skjólstæðings
SENDU OKKUR SKILABOÐ
HÉR ERUM VIÐ
Urðarhvarf 14, 2 hæð, 203 Kópavogur
sjá staðsetningarkort hér fyrir neðan