Gjafabréf í markþjálfun hjá Aldísi Örnu

18.000 kr. - 90.000 kr.

Markþjálfun hjá Aldísi Örnu markþjálfa og streituráðgjafa.

Hvernig væri að starta nýja árinu með blasti – með vellíðan og velgengni að markmiði?

Mannrækt er málið – tilvalin gjöf handa þeim sem þér þykir vænt um …Því hver dagur er dýrmætur!

Í boði er að kaupa gjafabréf í ráðgjöf sem inniheldur 1 tíma (18.000 kr), 2 tíma (36.000 kr) eða 5 tíma (90.000 kr). 

Flokkur:

Gjafabréf – Markþjálfun hjá Aldísi Örnu

Vellíðan er forsenda velgengni á hvaða sviði lífsins sem er. Markþjálfun er tilvalin gjöf til þeirra sem hafa metnað fyrir lífi sínu og vilja stuðla að persónulegum vexti með því að lifa í takt við eigin óskir og gildi. Markþjálfun felur í sér sjálfsrækt og valdeflingu einstaklingsins þar sem lokamarkmiðið er að viðkomandi vakni með skýran tilgang, hlakki til viðfangsefna dagsins og sofni sátt(ur) að kveldi.

 

Markþjálfi: Aldís Arna Tryggvadóttir, PCC vottaður markþjálfi, streituráðgjafi og dáleiðari.

Sjá nánari upplýsingar um Aldísi Örnu og markþjálfun

 

Í boði eru bæði rafrænir fjarfundar-tímar og staðar-tímar í markþjálfun sem þá fara fram í Heilsuvernd, Urðarhvarfi 14, 203 Kópavogi.

Verð:

  • 1 tími í ráðgjöf: kr. 18.000
  • 2 tímar í ráðgjöf: kr.  36.000
  • 5 tímar í ráðgjöf: kr. 90.000

Þegar greiðslan hefur gengið í gegn færð þú sent rafrænt gjafabréf til þín í tölvupósti frá Heilsuvernd á netfangið sem þú settir inn þegar þú greiddir fyrir gjafabréfið.

Gjafabréfið er í stærðinni A4 og afhendist sem pdf skjal sem þú getur annaðhvort áframsent á viðtakandann eða prentað út heima og gefið í jólapakkann.

Handhafi gjafabréfsins getur svo bókað tíma þegar honum hentar hjá Heilsuvernd í síma 510 6500 eða með því að senda póst á aldisarna@hv.is

 

 Athugið gjafabréfið gildir í 1 ár frá útgáfudegi þess.
is_IS

Þessi vefsíða notar vafrakökur (e. cookies). Nánar hér

Þessi vefsíða notar vafrakökur (e. cookies) til að auka vafraupplifun þína. Þú getur samþykkt eða hafnað vafrakökum. Flestir vafrar samþykkja þær sjálfkrafa en þú getur hinsvegar breytt vafrastillingunum þínum til þess að hafna þeim.

Loka