Kynferðisleg áreitni á vinnustað

Kynferðisleg áreitni getur átt sér stað á hvaða vinnustað sem er.

Fyrirlesturinn er fyrir vinnustaði sem vilja leggja sitt af mörkum til að koma í veg fyrir að kynferðisleg áreitni þrífist á þeirra vinnustöðum og um leið skapa öruggt og gott umhverfi fyrir sitt starfsfólk.

SENDA FYRIRSPURN

Kynferðisleg áreitni á vinnustað
EKKO

Kynferðisleg áreitni er skilgreind sem hvers kyns kynferðisleg hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi, fjandsamlegra, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna. Hegðunin getur verið orðbundin, táknræn og/eða líkamleg.

Markmið fyrirlestursins er að starfsfólk sé upplýst um hvaða hegðun er í lagi og hver ekki. Með því er dregið úr líkum á, eða komið í veg fyrir, að kynferðisleg áreitni þrífist á vinnustaðnum.

Fyrirlesturinn er fyrir vinnustaði sem vilja leggja sitt af mörkum til að koma í veg fyrir að kynferðisleg áreitni þrífist á þeirra vinnustöðum og um leið skapa öruggt og gott umhverfi fyrir sitt starfsfólk.

Á þessum fyrirlestri er fjallað um:

  • Birtingarmyndir kynferðislegrar áreitni.
  • Áhrif kynferðislegrar áreitni á einstaklinga.
  • Áhrif kynferðislegrar áreitni á starfsanda.
  • Áhrif kynferðislegrar áreitni á rekstur fyrirtækja/stofnana.
  • Algeng viðbrögð þegar sagt er frá og áhrif sem þau geta haft.
  • Þætti sem geta skapað aðstæður þar sem kynferðisleg áreitni þrífst.
  • Þætti sem geta skapað aðstæður sem draga úr hættu á kynferðislegri áreitni.

 

Leiðbeinandi:
Guðrún Katrín Jóhannesdóttir, félags- og fjölskyldufræðingur, MA.

Tímalengd: 30 eða 45 mínútur.

 

is_IS

Þessi vefsíða notar vafrakökur (e. cookies). Nánar hér

Þessi vefsíða notar vafrakökur (e. cookies) til að auka vafraupplifun þína. Þú getur samþykkt eða hafnað vafrakökum. Flestir vafrar samþykkja þær sjálfkrafa en þú getur hinsvegar breytt vafrastillingunum þínum til þess að hafna þeim.

Loka