Læknisvottorð vegna jákvæðs Covid-19 prófs
2.000 kr.
Einstaklingar sem greinast jákvæðir í mótefnamælingu Sameindar geta fengið læknisvottorð hjá Heilsuvernd er staðfestir að viðkomandi hafi móttefni gegn Covid-19 veirunni.
Til þess að fá vottorð þarf að gera eftirfarandi:
1. Veldu Panta í glugganum hér fyrir neðan.
2. Veldu tölu fyrir fjölda einstaklinga sem pantað er fyrir í glugganum fyrir þátttakendur.
3. Smelltu á Skráning til að staðfesta pöntun og greiða.
ATHUGIÐ – Þú færð tölvupóst frá vefkerfi Heilsuverndar þegar greiðsla þín fyrir læknisvottorð um jákvætt Covid-19 próf hefur verið móttekin.
Vinsamlegast farðu eftir þeim tilmælum sem koma fram í tölvupóstinum og pöntun þín er komin í ferli.
Þú færð SMS-skilaboð þegar vottorð þitt er tilbúið til afhendingar í gegnum Heilsuveru.
Hafðu samaband við hv@hv.is eða hringdu í síma 510 6500 ef þig vantar nánari upplýsingar.