Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing
Velkomin!
Á Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfingu eru rekin biðrými fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu.
Allir okkar skjólstæðingar eru komnir með samþykkt færni- og heilsumat og dvelja á Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfingu uns þeir fá boð um varanlega búsetu á hjúkrunarheimili.
Þjónusta
Þjónustan á Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfingu felur í sér að veita þeim skjólstæðingum sem dvelja hjá okkur þá umönnun, þjálfun og eftirlit sem þeir þurfa, á meðan þeir bíða eftir varanlegu búsetuúrræði.
Heimsóknartími
Við vitum að aðstandendur eru mikilvægasti parturinn í lífi skjólstæðinga okkar. Við hvetjum aðstandendur til að koma í heimsókn eins oft og þeir geta. Það styttir líka stundir að fá fólkið sitt í heimsókn og veitir styrk.
Við viljum gjarnan mæta þörfum aðstandenda og veitum því rúman heimsóknartíma
Heimsóknartími milli kl. 11:00 - 20:00
Vinsamlegast hafið samband við vaktstjóra ef óskað er eftir að heimsækja á öðrum tíma.
Vinnustaðurinn
Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfingu byggir starfsemi sína á hæfu, áhugassömu og traustu starfsfólki sem nýtur jafnra tækifæra í öruggu, heilbrigðu og jákvæðu starfsumhverfi.
Við hlúum vel að fólkinu okkar og leggjum ríka áherslu á jákvætt andrúmsloft á vinnustaðnum og að hver einstaklingur fái notið sín í starfi.
Við erum stöðugt að bæta í hóp okkar.
Fréttir og tilkynningar
Yfirlit frétta
Við fögnum frábærum áfanga!
Í dag var undirritaður samningur um rekstur og þjónustu í 100 hjúkrunarrýmum að Urðarhvarfi 16.
Skjólstæðingar eru ánægðir með nýju hjúkrunarrýmin að Urðarhvarfi 16
Það gleður okkur að heyra að skjólstæðingum líði vel í nýju hjúkrunarrýmunum okkar að Urðarhvarfi 16.
110 ný hjúkrunarrými og nýr íbúi svaf eins og engill
Mun létta talsvert á Landspítala. Ætlað til skammtímavistunar þar til fólk fær varanleg dvalarpláss á hjúkrunarheimilum.