Fara á efnissvæði

Gott að vita

Hér er að finna hagnýtar upplýsingar fyrir skjólstæðinga okkar sem dvelja á Heilsuvernd Vífilsstöðum og aðstandendur þeirra um ýmislegt sem viðkemur dvölinni á Vífilsstöðum.

Heimsóknartímar og leyfi

Við viljum gjarnan mæta þörfum aðstandenda sem vilja heimsækja þá sem dvelja á Heilsuvernd Vífilsstöðum en höfum miðað við að heimsóknir séu ekki fyrir kl. 11:00 að morgni og ekki lengur en til kl. 20:00 á kvöldin nema í samráði við vaktstjóra. 

Við vitum að aðstandendur eru mikilvægasti parturinn í lífi skjólstæðinga okkar og hvetjum þá til að koma eins mikið og þeir geta. Það styttir líka stundir að fá fólkið sitt í heimsókn. 

Ef heilsa og aðstæður leyfa eru ferðir út af Heilsuvernd Vífilsstöðum liður í auknum lífsgæðum, sem dæmi að skreppa í bíltúr, heimsókn eða fjölskylduboð. Ekki þarf sérstakt leyfi til að fara með skjólstæðinga en við biðjum ykkur um að láta vaktstjóra vita. 

Ef þörf er á sérstökum undirbúningi áður en skjólstæðingur er sóttur t.d. ef hafa þarf lyf meðferðis eða annað, er gott að láta vita með smá fyrirvara. Einnig er gott að gefa upplýsingar um áætlaða heimkomu. 

Athugið að leigubílar eða hjólastólabílar í einkaerindum eða við flutning frá Heilsuvernd Vífilsstöðum eru ekki greiddir af Heilsuvernd. Aðstandendur sjá sjálfir um að bóka ogreiða fyrir flutning.

Matur og matmálstímar

Ekkert framleiðslueldhús er í húsinu en við fáum sendan heitann mat í hádeginu og kvöldin frá Heilsuvernd Dvöl-Endurhæfingu í Kópavogi. Maturinn er orku- og próteinríkur og hannaður með aldraða í huga.

Starfsfólk okkar á Heilsuvernd Vífilsstöðum útbúa morgunverð, kaffi og kvöldkaffi. 

Ef um fæðuofnæmi eða óþol er að ræða er mikilvægt að ræða það við vakthafandi hjúkrunarfræðing sem fyrst.

Tímasetningar máltíða

  • Morgunmatur, kl. 09:00-10:30
  • Hádegismatur, kl. 12:00-13:00
  • Síðdegiskaffi, kl. 14:30-15:00
  • Kvöldmatur, kl. 18:00-19:00
  • Kvöldkaffi, kl. 20:00

Félagsstarf

Starfsmenn í félagsstarfi fara á milli hæða og bjóða upp á t.d. upplestur, spil, söng o.fl. á virkum dögum. Einnig kemur prestur þrisvar í mánuði og er með samveru og söngstund.

Hárgreiðsla og fótsnyrting

Hægt er að panta klippingu og fótsnyrtingu á Heilsuvernd Vífilsstöðum fyrir þá sem það kjósa.

Aðstandendur hafa samband beint við verktaka til að panta klippingu/fótsnyrtingu. 

  • Hárgreiðsla/klipping: Guðrún, sími 869-3110
  • Fótaaðgerðarfræðingur: Edda, sími 820-0593

Greiða þarf með reiðufé eða millifærslu. 

Greiðslur

Heilsuvernd Vífilsstaðir eru reknir á samningum við Sjúkratryggingar Íslands. Frá 1. september 2026 eru greiðslur í biðrýmum sambærilegar eins og á hjúkrunarheimilum. Heilsuvernd Vífilsstaðir innheimtir kostnaðarþátttöku skjólstæðinga fyrir hönd Tryggingarstofnun (TR). Greiðsluseðill birtist í heimabanka skjólstæðings

Bendum á Tryggingastofnun til þess að fá nánari upplýsingar varðandi greiðsluþátttöku skjólstæðinga.

Þagnarskylda

Það sem þú kannt að sjá eða heyra um aðra skjólstæðinga sem dvelja á Heilsuvernd Vífilsstöðum heldur þú fyrir sjálfan þig. 

Ekki er leyfilegt að ræða persónuupplýsinar skjólstæðinga, taka ljósmyndir eða upptökur af einstaklingum án leyfis. Slíkt varðar við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. 

Brot á ofangreindum lögum geta verið kærð til lögreglu.

Hafa samband

Tekið er á móti fyrirspurnum í síma 590-3800. 
Einnig er hægt að hafa samband við vakthafandi hjúkrunarfræðing í síma 612-4994 /617-0508.