Fara á efnissvæði

Heilbrigðisþjónusta

Skjólstæðingar okkar fá þá umönnun, þjálfun og eftirlit sem þeir þurfa, á meðan þeir dvelja hjá okkur.

Skjólstæðingar okkar fá þá umönnun, þjálfun og eftirlit sem þeir þurfa, á meðan þeir dvelja hjá okkur. Hægt er að veita flestar meðferðir á Heilsuvernd Vífilsstöðum t.d. blóðgjöf, sýklalyfjagjafir o.fl.. Ef um bráð alvarleg veikindi er að ræða eða ef einstaklingur hlýtur beinbrot er viðkomandi sendur á Landspítala. 

Læknisþjónusta

Læknisþjónusta fyrir þá sem hér dvelja er tvisvar í viku en þess utan er alltaf læknir á bakvakt.

Í starfsemi okkar er ekki gert ráð fyrir fjölskyldufundum með lækni þar sem búið er að ljúka læknisfræðilegri uppvinnslu við komu á Heilsuvernd Vífilsstaði en sé þess óskað reynum við að mæta þeim óskum.

Athugið: Heilsuvernd Vífilsstaðir greiða ekki fyrir bókaða tíma hjá sérfræðingum utan Vífilsstaða s.s. augnlæknum, tannlæknum, hjartalæknum o.fl. nema að tilvísun til þeirra sérfræðinga komi frá læknum Heilsuverndar. Það er á ábyrgð aðstandenda að gera ráðstafanir varðandi flutning viðkomandi og fylgd í þessa tíma, nema tilvísun sé frá Heilsuvernd.

Hjúkrunarþjónusta

Hjúkrunarfræðingar eru á vakt allan sólarhringinn. Í einstaka tilfellum er ekki hjúkrunarfræðingur í húsi og er þá alltaf hjúkrunarfræðingur á bakvakt. 

Aðstandendur geta ávallt snúið sér til vaktahafandi hjúkrunarfræðinga á hverri vakt hafi þeir spurningar um sitt fólk.

Vaktstjórar leggja áherslu á að hafa símasamband við þann sem skráður er nánasti aðstandandi ef breytingar verða á heilsu og líðan ástvinar. Nánasti aðstandandi ber ábyrgð á því að bera upplýsingar áfram til þeirra sem við á.

Hjúkrunarfræðingar setja fram hjúkrunaráætlun sem tryggir að hjúkrunarþörfum skjólstæðinga sé fullnægt.

Sjúkraþjálfun

Sjúkraþjálfun er staðsett á 1. hæð. Athugið að ekki verður full starfsemi í sjúkraþjálfun fyrstu vikurnar eftir enduropnun í ágúst 2026. Verið er að vinna í að fá búnað og þjálfara í hús. 

Læknir gerir beiðni um sjúkraþjálfun ef um einstaklingsþjálfun er að ræða en allir geta tekið þátt í hópþjálfun s.s. stólaleikfimi o.fl.

Markmið með sjúkraþjálfun er að viðhalda líkamlegri færni og getu. Sjúkraþjálfarar meta þörf fyrir hjálpartæki og útvega þau tæki sem þörf er fyrir.

Athugið að sjúkraþjálfun hentar ekki öllum.

Félagsstarf

Starfsmenn í félagsstarfi fara á milli hæða og bjóða skjólstæðingum upp á t.d. upplestur, spil, söng o.fl. á virkum dögum. Einnig kemur prestur þrisvar í mánuði og er með samveru og söngstund.

Bjöllukerfi

Allir skjólstæðingar fá að láni öryggishnapp sem þeir geta haft við höndina til að hringja eftir aðstoð hvenær sem er sólarhringsins.

Öryggishnapparnir eru tengdir við vinnusíma starfsfólks og því eðlilegt að þið sjáið starfsfólk mikið með síma á lofti. Mikilvægt er að muna að skilja öryggishnapp og hleðslutæki eftir þegar viðkomandi flytur á hjúkrunarheimili. 

Hafa samband

Tekið er á móti fyrirspurnum í síma 590-3800. 
Einnig er hægt að hafa samband við vakthafandi hjúkrunarfræðing í síma 612-4994 /617-0508.