Fara á efnissvæði
Berglind-Soffia A-Blondal

Dr. og klínískur næringarfræðingur

Dr. Berglind Blöndal vinnur eftir Health at Every Size (HAES) módelinu þar sem áhersla er lögð á að ná sáttum við eigin líkama og öðlast það heilbrigði sem er á okkar valdi stendur hvað varðar mataræði.

Fyrirspurn eða bóka tíma

Tekið er á móti tímapöntunum í síma 510-6500. 

Í sameiningu munum við finna leiðir til þess að frelsa okkur frá megrunarmenningu og einblína á að nærast til að uppfylla orkuþörf ásamt því að auka vellíðan og draga úr streitu tengt mataræði.

Berglind býður upp á þjálfun í að borða eftir okkar eigin innsæi (intuitive eating).

Í fyrsta tímanum er máltíðarmunstur greint og farið ítarlega yfir fæðissögu einstaklingins. Næringartengdur vandi er síðan greindur og unnið út frá þeirri greiningu í átt að bættu sambandi við mat.

Næringarmeðferð hjá næringarfræðingi felur alltaf í sér einstaklingsmiðaða nálgun þar sem unnið er út frá vanda einstaklingsins. Ef þörf er á er sá sem kemur í meðferð sendur í blóðprufu.

Berglind er sérhæfð í næringu aldraðra, átröskun og vannæringu.

Þeir sem gætu gagnast næringarmeðferð hjá Berglindi eru:

  • Aldraðir einstaklingar
  • Þeir sem hafa jójóað upp og niður í þyngd í gegnum árin og vilja komast út úr megrunarlestinni
  • Fólk með átröskun (anorexia, búlemía, binge eating disorder o.fl.)
  • Fólk með vannæringu eða eru með lélegt næringarástand
  • Fólk sem er með skort á vítamíni/um og/eða steinefni/um
  • Fólk sem er með nýrnasjúkdóm
  • Fólk sem hefur farið í magahjáveituaðgerð eða magaermisaðgerð
  • Fólk sem er með krabbamein
  • Fólk sem er með sykursýki
  • Fólk sem er að glíma við þunglyndi/kvíða
  • Fólk með þvagsýrugigt
  • Fólk með gigtarsjúkdóma
  • Fólk með ofnæmi eða óþol fyrir einhverju úr matnum
  • Fólk með meltingartruflanir eins og IBS og IBD, uppþembu, niðurgang, hægðatregðu, o.fl.
  • Fólk með Parkinson, bæði aukin orkuþörf og flókið að taka lyf og uppfylla próteinþörf
  • Fólk með bólgur í líkama
    Og fleira og fleira