Fara á efnissvæði

Skyndihjálp

Námskeiðin í skyndihjálp eru ætluð skipulagsheildum og hópum. Námskeiðin henta einkar vel á afmörkuðum fundum, í hádeginu eða tengt annarri fræðslustarfssemi svo sem í heilsuviku, á fræðsludögum og þess háttar.  

Hafa samband

Hafðu samband ef þú ert með fyrirspurn eða vilt bóka skyndihjálparnámskeið fyrir þitt starfsfólk

Á skyndihjálparnámskeiðunum er lögð áhersla á að kenna rétt viðbrögð í neyð og einfaldar aðferðir skyndihjálpar. Leiðbeinendur námskeiðsins eru sérþjálfaðir hjúkrunarfræðingar með kennsluréttindi frá Rauða krossi Íslands.

Þátttakendur á skyndihjálparnámskeiðum Heilsuverndar (4+6 klst) fá viðurkennd skírteini í lok námskeiðs.  

Grundvallarþekking í skyndihjálp getur skipt sköpun

Vinnuslys og lífshættuleg atvik eða bráð veikindi geta átt sér stað á öllum vinnustöðum. Þá er brýnt að hafa undirstöðuþekkingu í skyndihjálp því miklvægt er að bregðast fumlaust við þegar mínútur og jafnvel sekúndur geta skipt sköpum.  

Megin markmið námskeiða er að þátttakendur:  

  • Geri sér grein fyrir mikilvægi skyndihjálpar  
  • Kunni hin fjögur skref skyndihjálpar  
  • Kunni rétt viðbrögð við neyðaraðstæður  
  • Öðlist grunnfærni í að beita skyndihjálp og sálrænum stuðniningi í neyðartilfellum  
  • Geti veitt slösuðu/veiku fólki aðstoð í neyð þar til sérhæfð aðstoð berst  

Við viljum koma á móts við þarfir okkar viðskiptavina og bjóðum því einnig upp á að sníða námskeið og tímasetningar eftir bestu getu í samræmi við þarfir hvers og eins.

Heilsuvernd býður upp á eftirfarandi grunnnámskeið:  

Skyndihjálparnámskeið I

Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja læra eða rifja upp grunnatriði skyndihjálpar og sálræns stuðnings, öðlast lágmarksfærni í að veita slösuðum eða veikum aðstoð í bráðatilfellum og geti greint einkenni algengra sjúkdóma og áverka.  

Þáttakendur fá viðurkennd skírteini frá Rauða Krossinum í lok námskeiðs.   

Tímalengd: 4 klst.

Endurlífgunarnámskeið

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist færni í að beita hjartahnoði og blæstri og kunni að nota hjartarafstuðtæki við endurlífgun.  

Hentugt námskeið fyrir þá sem hafa lært skyndihjálp áður en mælt er með endurmenntun annað hvert ár.  

Tímalengd: 2 klst.

Skyndihjálparnámskeið II

Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja læra eða rifja upp grunnatriði skyndihjálpar og sálræns stuðnings, öðlast lágmarksfærni í að veita slösuðum eða veikum aðstoð í bráðatilfellum og geti greint einkenni algengra sjúkdóma og áverka.    

Á þessu námskeiði er einnig er farið nánar í þætti sem henta best á hverjum vinnustað fyrir sig og er sérsniðið að vinnustaðnum.  

Þáttakendur fá viðurkennd skírteini frá Rauða Krossinum í lok námskeiðs.

Tímalengd: 6 klst.

Kennslufyrirkomulag skyndihjálparnámskeiða

Kennslufyrirkomulag:

Fyrirlestur, sýnikennsla, tilfellaæfingar og umræður.  

Fjöldi:  

Við miðum við allt að 15 manns á námskeiði með einum leiðbeinenda.

Ef hópurinn er stærri getum við bætt við öðrum leiðbeinanda við fyrir hverja 15 nemendur fyrir aukagjald. Hámarksfjöldi á námskeiði eru 30 manns.