Fara á efnissvæði

Fræðsla og námskeið

Heilsuvernd býður upp á fræðslu og námskeið á sviði vinnu- og heilsuverndar sem við sníðum að þörfum viðskiptavina okkar, einstaklingum og fyrirtækjum.

Úrval fræðslu og námskeiða á einum stað

Boðið er upp á fyrirlestra og námskeið á sviði vinnu- og heilsuverndar ætluð skipulagsheildum og hópum.

Fræðslan hentar einkar vel á afmörkuðum fundum, í hádeginu, í tengslum við viðburði eða aðra fræðslustarfssemi svo sem í heilsuviku, á fræðsludögum, ráðstefnum og þess háttar. Hægt er að velja um staðar- eða fjarfræðslu.

Einnig er boðið upp á vinnustofur, handleiðslu og ráðgjöf fyrir starfsmenn og stjórnendur vinnustaða, hópa og teymi. 

Að auki eru haldin ýmis tímasett lengri og styttri námskeið fyrir einstaklinga, pör, fjölskyldur og ungmenni. Námskeiðin eru auglýst sérstaklega þegar þau eru í boði.

Teymi sérfræðinga okkar sem annast fræðslu og námskeið á vegum Heilsuverndar er skipað fagfólki og sérfræðingum á sviði heilsu og vinnuverndar, sálfræðingum, streituráðgjöfum, félagsfræðingum, félagsráðgjöfum, markþjálfum, hjúkrunarfræðingum og læknum, sjúkraþjálfum og fleirum.

Skoða fræðslu í boði

Hvaða fræðslu viltu bjóða þínu starfsfólki upp á?