Fara á efnissvæði

Stjórnandi

Aldís Arna Tryggvadóttir

PCC vottaður markþjálfi, streituráðgjafi, samskiptaráðgjafi og viðskiptafræðingur

Við viljum koma á móts við þarfir okkar viðskiptavina og sérsníðum því fyrirlestra og tímasetningar í samræmi við þarfir hvers og eins.

Senda fyrirspurn eða bóka fræðslu

Leynivopn leiðtogans

Hvernig geta stjórnendur og starfsmenn eflt sig sem leiðtoga og bætt líðan sína og árangur í vinnu og einkalífi án þess að auka álag og streitu? Svarið felst í því að verða sinn eigin markþjálfi!

Stækkaðu þig og þína!

Markmið námskeiðsins er að kenna þátttakendum samtalstækni markþjálfunar í samskiptum og markmiðasetningu hvers konar – að verða sinn eigin markþjálfi. Í kjölfarið að minnka álag, áreiti og streitu þátttakenda en ofangreint hefur bagaleg áhrif á heilsu fólks.

Stjórnendur eru undir sérstaklega miklu álagi í vinnu og samskiptum. Þeir eru bakhjarlar margra en eiga yfirleitt sjálfir fáa eða jafnvel enga bakhjarla.

Á námskeiðinu er annars vegar farið yfir það hvernig stjórnendur geta styrkt sig sem leiðtoga (innri markþjálfun) og bætt líðan sína og árangur í vinnu og einkalífi án þess að auka álag og streitu. Hins vegar er fjallað um hvernig stjórnendur geta eflt og hvatt starfsmenn sína til þess að bera ríkari ábyrgð á eigin líðan, heilsu og árangri í leik & starfi á uppbyggilegan og árangursríkan hátt (ytri markþjálfun).

Dæmi um spurningar sem svarað verður á námskeiðinu:

  1. Hvað er markþjálfun & hver eru megin verkfæri aðferðarfræðarinnar?
  2. Hvernig má efla leiðtogahæfni stjórnenda & starfsmanna og laða fram það besta í viðkomandi?
  3. Hvernig getur samtalstækni markþjálfunar verið forvörn gegn álagi, streitu og vanlíðan en  um leið aukið starfsánægju og afköst?
  4. Hvernig má stuðla að fyrirmyndar samskiptum?
  5. Hvernig getur markþjálfun kennt einstaklingum að bera ríkari ábyrgð á eigin heilsu, líðan & árangri? (Innri markþjálfun). 
  6. Hvernig nýtist teymismarkþjálfun til að bæta vinnustaðarmenningu og velgengni vinnustaðarins? (Ytri markþjálfun). 

Sannur leiðtogi miðlar virði og mögleikum fólks til vaxtar og velgengni á það skýran hátt að viðkomandi fer sjálf/ur að trúa því og haga sér í samræmi við það.

Lengd námskeiðs

30 -120 mín. (30, 45, 60, 90, 120 mín). 

Vinnustofa 1/2 eða 1 dagur