Fara á efnissvæði

Stjórnandi

Helga Hrönn Óladóttir

Mannauðsfræðingur og streituráðgjafi

Við viljum koma á móts við þarfir okkar viðskiptavina og sérsníðum því fyrirlestra og tímasetningar í samræmi við þarfir hvers og eins.

Senda fyrirspurn eða bóka fræðslu

Tæklaðu tímann með tímastjórnun

Erindi fyrir starfsfólk vinnustaða þar sem kenndar eru aðferðir sem stuðla að bættri tímastjórnun, auka skipulagshæfni og bæta forgangsröðun í starfi, námi eða daglegu lífi.

Fjallað verður um aðferðir sem stuðla að bættri tímastjórnun og forgangsröðun svo draga megi úr streitu og kulnun. Farið verður í tímaáætlanir og komið inn á algeng skipulagsforrit sem gagnast í daglegu lífi. Þátttakendum verður gefin betri yfirsýn yfir verkefnin sín, aukin skipulagshæfni sem og bætt forgangsröðun í starfi, námi eða daglegu lífi.

Svarað verður spurningum á borð við:

  • Hvernig forgangsraða ég verkefnum?
  • Hvernig áætla ég tímann sem fer í hvert verkefni fyrir sig?
  • Hvað ber að varast við tímastjórnun og forgangsröðun?
  • Hverjar eru algengustu afleiðingar dræmrar tímastjórnunar?
  • Með hvaða hætti næ ég að klára verkefnin í stað þess að fresta þeim?
  • Hvernig set ég mér og öðrum mörk?
  • Hverjir eru helstu tímaþjófarnir og truflanir sem við upplifum?

Lengd

20. mín erindi

Tilvalið erindi sem hentar vel sem fjarfræðsla þegar tíminn er stuttur.