Bólusetningar ferðamanna
Heilsuvernd býður ferðamönnum upp á allar almennar og sértækar bólusetningar og ráðgjöf vegna ferðalaga erlendis.
Bóka tíma
Smelltu á hnappinn til að bóka tíma í bólusetningu og ráðgjöf vegna ferðalaga erlendis. Tekið er á móti fyrirspurnum á mottaka@hv.is
Bólusetningar og ráðgjöf vegna ferðalaga erlendis
Ráðgjöf er veitt út frá þeim stað/landi sem ferðast er til og veittar upplýsingar um smitvarnir og forvarnir gegn sjúkdómum sem ferðamenn geta átt í hættu á að verða útsettir fyrir.
Mælt er með að bóka tíma í bólusetningu ef þú hefur ekki áður farið í ferðamannabólusetningar, eða ef meira en þrjú ár eru liðin frá síðustu ferðamannabólusetningu.
Ráðlagt er að bóka tíma minnst 6 vikum fyrir brottför til að tryggja fulla virkni bóluefnanna og að hægt sé að endurbólusetja með þeim efnum sem þarf fleiri en einn skammt af.
Bólusetningar sem í boði eru:
- Barnaveiki, stífkrampi, kíghósti
- Barnaveiki, stífkrampi, kíghósti og mænusótt
- Mænusótt
- Taugaveiki
- Mýgulusótt, Yellow fewer
- Lifrarbólga A
- Lifrarbólga B
- Lifrarbólga A+B
- Heilahimnubólga
- Hundaæði* - sérpöntun
- Japönsk Heilabólga** - sérpöntun
Athugið að staða bóluefna í landinu er misjöfn og því getum við ekki tryggt að öll ofangreind bóluefni séu til.
*Bólusetning gegn hundaæði eru þrír skammtar gefnir á fjórum vikum
**Bólusetning gegn japanskri heilabólgu eru tveir skammtar gefnir á fjórum vikum.