Fara á efnissvæði

Lyfja- og fíkniefnaprófanir og áfengismæling

Lyfja- og fíkniefnapróf sem og áfengismæling er mikilvægur liður í að tryggja öryggi og heilsu starfsfólks á vinnustað og almennings.

Hafa samband

Hafðu samband ef þú ert með fyrirspurn eða vilt bóka þjónustuna

Lyfja- og fíkniefnapróf og áfengismælingar

Sé starfsmaður undir áhrifum vímugjafa getur hann óafvitandi ógnað öryggi og heilsu samstarfsmanna sinna, viðskiptavina og almennings, auk þess að skaða eigin heilsu.

Lyfja- og fíkniefnaprófanir sem og áfengismælingar eru sérstaklega mikilvægar í atvinnugreinum þar sem almannahagsmunir krefjast þess að starfsmenn séu allsgáðir, s.s. í löggæslu, samgöngum, verklegum framkvæmdum, efnaiðnaði og heilbrigðisþjónustu.

Söfnun og úrvinnsla lífsýna er í samræmi við lög um persónuvernd.

Framkvæmd

Framkvæmd lyfja-, fíkniefnaprófa og áfengismælinga fer fram hjá Heilsuvernd ehf. Urðarhvarfi 14, 203 Kópavogi eða innan fyrirtækis sé góð aðstaða til staðar m.t.t. framkvæmdar.

Starfsmaður undirritar þar til gert samþykki fyrir töku prófsins. Gefin er út staðfesting þar sem fram kemur hvort starfsmaður hafi staðist prófið.

Lyfja- fíkniefnaprófin og áfengismælingarnar eru t.a.m. tekin í tenglslum við:

  1. Starfsráðningar
  2. Handahófskennt úrtak
  3. Við atvik eða vinnuslys
  4. Þegar grunsemdir vakna