Fara á efnissvæði

Stjórnandi

Aldís Arna Tryggvadóttir

PCC vottaður markþjálfi, streituráðgjafi, samskiptaráðgjafi og viðskiptafræðingur

Við viljum koma á móts við þarfir okkar viðskiptavina og sérsníðum því fyrirlestra og tímasetningar í samræmi við þarfir hvers og eins.

Senda fyrirspurn eða bóka fræðslu

Lotning og lífsgleði – hamingjustjórnun

Lifðu þér til ánægju!

Hvernig förum við að því að tendra lífsneistann og lifa okkur til ánægju þrátt fyrir það sem á undan er gengið?  Ætli við getum orðið okkar eigin ,,Gleðimálaráðherra’’? 

Tilvalinn fyrirlestur sem hreyfir við huga og hjörtum fólks en er um leið ,,peppandi’’. Einlægni, húmor og fjör eru einkunnarorð þessa fyrirlestrar.

Markmiðið er að gefa þátttakenda tæki og tól til þess að geta tendrað lífsneistann og lifað sér til ánægju alla daga þrátt fyrir það sem á undan er gengið – að kenna viðkomandi að verða sinn eigin ,,Gleðimálaráðherra”.

Lotning (e. awe) er eitt helsta rannsóknarefni fræðimanna í mannrækt nú um stundir. En hvað er lotning og hvernig má auka lífsgleði og lifa sér til ánægju í heimi sem ,,versnandi’’ fer?

Rætt verður um mikilvægi þess að undrast og hrífast í lífinu en samkvæmt rannsóknum upplifir aðeins minni hluti fólks lotningu í lífinu. Farið er í ferðalag inn á við og aftur í tímann þegar við vorum börn og sáum heiminn í öðru ljósi: Allt var merkilegt og lífið var eitt stórt kraftaverk. Við vorum hamingjusöm ,,af því bara“ – við vorum frjáls.Fjallað verður um þá dásamlegu eiginleika sem börn hafa og sýnt fram á hvernig hægt er að ná þeim aftur með því að tengjast barninu innra með sjálfum sér – kjarnanum.

Dæmi um spurningar sem svarað verður í fyrirlestrinum:

  1. Hver er munurinn á því að ,,vera bara til“ og lifa sér til ánægju?
  2. Hvernig getur þú verið þinn eigin ,,Gleðimálaráðherra?“
  3. Hvað geta börn kennt okkur um líðan, samskipti og sjálfstraust?
  4. Hvernig virkar ,,Gleðiseðillinn’’?
  5. Hvað er lotning & skiptir hún máli?
  6. Hver eru helstu áhrif viðhorfa á líf okkar & líðan?
  7. Hvernig getur þú skapað þér skemmtilega framtíð og lifað þér til ánægju?
  8. Hvenær lékstu þér síðast? Og hvernig?

Á meðan við reynum að kenna börnunum okkar eitthvað um lífið þá kenna börnin okkur í rauninni um það hvað lífið raunverulega snýst… 

Tímalengd

30 -120 mín. (30, 45, 60, 90, 120 mín). 

Vinnustofa 1/2 eða 1 dagur.

Athugið: Fyrirlesturinn er einnig í boði sem fjarfyrirlestur í gegnum MS Teams.