Fara á efnissvæði
Aldis-Arna-Tryggvadottir

Aldís Arna Tryggvadóttir

Markþjálfun, streituráðgjöf, samskiptaráðgjöf, dáleiðsla, heilsun og fræðsla. 

FYRIRSPURN EÐA BÓKA TÍMA

Tekið er á móti tímapöntunum í síma 510-6500. 

,,Mannrækt er málið“ er lífssýn Aldísar Örnu og endurspeglan þann brennandi áhuga sem hún hefur á ræktun mennskunnar og gleðinnar í lífi hvers og eins. Hún trúir því að sérhvert okkar hafi alla þá visku og styrk sem þarf til að skapa farsæld í eigin lífi – að skapa líf án eftirsjár í fullri gnægð með lífsgleði að leiðarljósi. 

Aldís Arna starfar að streituráðgjöf, markþjálfun, samskiptaráðgjöf, dáleiðslu, heilun og fræðslu til forvarna. Hún starfar með einstaklingum, hópum og teymum á öllum stigum samfélagsins og er mjög vinsæll fyrirlesari hérlendis sem erlendis. Fræðsluerindin/vinnustofurnar lúta einkum að árangursríkri streitu- og vellíðunarstjórnun, markmiðasetningu í lífi, leik og starfi, leiðtogaþjálfun, úrvinnslu samskiptavanda á vinnustað, hamingjustjórnun og heilbrigði. 

Menntun
Aldís Arna hefur hlotið gæðavottun markþjálfa frá International Coaching Federation (ICF), stærstu óháðu samtökum markþjálfa á alþjóðavísu – “The Golden Standard in Coaching” sem PCC vottaður fagmarkþjálfi (e. Professional Certified Coach). Einnig hefur hún lokið framhaldnámi í klínískri meðferðardáleiðslu og er sérfræðingur í hugrænni endurforritun frá Dáleiðsluskóla Íslands. Þá hefur hún lokið prófi í viðskiptafræði og verðbréfaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík, prófi í hagnýtri frönsku fyrir atvinnulífið frá Háskóla Íslands og kennararéttindum í heilsueflingu og líkamsrækt frá Fusion Fitness Academy og dáleiðslu.

Reynsla
Aldís Arna hefur fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu á sviði stjórnunarstarfa, markþjálfunar, stefnumótunar, mannauðsstjórnunar, alþjóðlegra samskipta og fjármála. Aldís Arna er formaður stjórnar Félags kvenna í atvinnulífinu fyrir Vesturlandsumdæmi (FKA Vesturland), hún hefur setið í stjórn faghóps markþjálfunar hjá Stjórnvísi og kennt markþjálfun. Þá er hún stofandi og framkvæmdastjóri heilsutengdu ferðaskrifstofunnar ColdSpot (coldspot.is) sem er í samstarfi við Heilsuvernd varðandi græna endurhæfingu, fræðsludaga, vinnustofur, leiðtogaþjálfun stjórnenda, teymisþjálfun starfsmanna, stefnumótun fyrirtækja sem og hópefli, starfsmanna- & hvataferðir. Aldís Arna er umdæmisstjóri Streituskólans á Vesturlandi og sjálfboðaliði í viðbragðsteymi Rauða Krossins á Vesturlandi. 

Þjónusta fyrir einstaklinga

  • Einstaklingsmiðuð streituráðgjöf
  • Heilsu- og lífstílsmarkþjálfun
  • Markþjálfun
  • Teymisþjálfun fjölskyldna, para, vina og annarra hópa
  • Græn endurhæfing (með ColdSpot) 

Þjónusta fyrir fyrirtæki

  • Fræðsluerindi
  • Vinnustofur
  • Leiðtogaþjálfun og valdefling stjórnenda og starfsmanna
  • Teymisþjálfun (e. Team Coaching)
  • Stefnumótun & gerð samskipta- og samstarfssáttmála 
  • Úrlausn samskiptavanda
  • Hópefli, starfsmanna- og hvataferðir

Fyrirlestrar, fræðsla og vinnustofur

  • Árangursrík streitustjórnun á mannamáli
    Streita & streituvarnir – Að verða sinn eigin ,,Orkumálaráðherra“
  • Samskipti, samstarf & starfsánægja
    Samskiptahæfni og vernd félagslegrar heilsu - Að verða sinn eigin ,,Félagsmálaráðherra“
  • Leynivopn leiðtogans – leiðtogaþjálfun
    Markþjálfun sem verkfæri stjórnenda – Að verða sinn eigin markþjálfi
  • Vegferð að vellíðan og velgengni
    Valdefling & markmiðasetning – Að verða sinn eigin ,,Forsætisráðherra“
  • Lotning & lífsgleði – Tendraðu lífsneistann
    Að lifa sér til ánægju og verða sinn eigin ,,Gleðimálaráðherra“
  • Töfrar eða truflun – tökin á tækninni
    Tæknistreita – Að verða sinn eigin ,,Tæknimálaráðherra“
  • Ég er ég! 
    Sjálfsrækt – Að verða sinn ,,eigin alræðisherra“
  • Úr drasli í drottningu (persónuleg reynslusaga). 
    ,,Doktorspróf“ í sjúklegri streitu (út frá reynslu) og leiðin til baka aftur til bata.

Námskeið

  • Mitt líf – mín leið
    Heilsumarkþjálfun: Heildræn heilsufarsefling (líkamleg, andlega og félagsleg heilsa)
  • Valdefling & vellíðan – sjálfsrækt & sigrar
    Sjálfstyrkingarnámskeið
  • Orku-, vellíðunar- og streitustjórnun
    Sjálfstyrkingarnámskeið
  • Hópstarf gegn streitu
    Hvatning – hópefli – framtíðarsýn

Streituráðgjöf

Streituráðgjöf til einstaklinga felst í því að greina streituvalda og álagsviðbrögð viðkomandi svo móta megi einstaklingsbundna streituvarnaráætlun til framtíðar. Streituvarnaráætlunin tekur mið af aðstæðum og persónuleika þess sem þjónustuna sækir og markmið hennar er að kortleggja ákjósanlegar leiðir sem henta viðkomandi til þess að verjast streitunni – sigra streituna áður en streitan sigrar einstaklinginn með fræðslu til forvarna.

Streituráðgjöf á vinnustað lítur einkum að gerð forvarna- og fræðsluáætlana sem miða að því að bæta vellíðan & velgengni á vinnustað með samstilltu átaki og meðvitund stjórnenda & starfsmanna. Fræðsla er besta forvörnin gegn streitu og vanlíðan hvers konar. Fyrsta skref er yfirleitt að byrja á fræðslu til stjórnenda og starfsmanna. Síðar er hægt að bæta fleiri þjónustuþáttum við þjónustuna, s.s. aukinni fræðslu og einstaklingsbundinni streituráðgjöf til sérhvers starfsmanns.
 
Hópastarf gegn streitu
Hópstarf gegn streitu felst í að nokkrir einstaklingar komi vikulega saman í hóp í 8-10 skipti, 2 klst. í senn með streituráðgjöfum Heilsuverndar. Markmiðið með hópstarfi er sjálfsefling og stuðningur einstaklinga til að ná tökum á streitunni og tilverunni. Streituráðgjafarnir Dr. Sveinbjörg Júlía Svavarsdóttir og Aldís Arna Tryggvadóttir, PCC vottaður markþjálfi, stýra fundinum sem skiptist í fræðslu og samtal þátttakenda. Í hópstarfi gildir gagnkvæmt traust og trúnaður.

Markþjálfun

Markþjálfun er vinsæl og virt aðferðarfræði sem nýtist jafnt til starfa, í árangursríkum samskiptum og við markmiðasetningu hvers konar.

Tilgangur markþjálfunar er að einstaklingar upplifi ríkari tilgang, lífshamingju, sigra og sátt. Markþjálfun er vettvangur visku, virðingar & trausts og miðar að því að markþjálfi styðji marksækjanda í að taka fulla ábyrgð og stjórn á eigin lífi og líðan með sjálfsrækt að leiðarljósi.
Markþjálfun á rætur að rekja í virtar fræðigreinar, m.a. jákvæða sálfræði, leiðtogafræði, stefnumótun, íþróttafræði, hugræna atferlismeðferð (HAM), geðlækningar, sálgæslu, tilvistarsálfræði, uppeldisfræði og NLP.

Markþjálfun er fyrir hvern þann sem hefur metnað til þess að fá meira út úr lífinu og blómstra – þann sem vill með stuðningi markþjálfa virkja sína innri visku & styrk til þess að breyta draumsýn í veruleika á hvaða sviði lífsins sem er, t.d. varðandi heilsueflingu (heilsumarkþjálfun), samskipti, nám & störf, jafnvægi einkalífs og atvinnu, aukna lífsgleði og aukin lífsgæði.

Viðfangsefni markþjálfunar snúast einkum um að leita svara við eftirfarandi spurningum:

  • Hver er ég (raunverulega)?
  • Hvað vil ég (raunverulega)?
  • Af hverju vil ég þetta?
  • Hvernig skilgreini ég árangur? Hvað er árangur fyrir mér?
  • Hvernig næ ég markmiðum mínum á uppbyggilegan, árangursríkan hátt og skemmtilegan hátt?
  • Hver er minn tilgangur í lífi, leik og starfi? Hvað kom ég til að læra og hvað ætla ég að skilja eftir?

Teymisþjálfun

Teymismarkþjálfun hefur reynst hvers konar teymum einstaklega árangursrík leið til þess að bæta líðan, samskipti og árangur fólks innan teymisins. Teymisþjálfun hefur vaxið í vinsældum á vinnustöðum um allan heim þar sem hún er til þess fallin að auka vellíðan og velgengni starfsmanna, bæta þar með starfsanda, samskipti, samstarf og vinnugleði sem leiðir af sér aukin afköst, framleiðni og hagnað fyrirtækja. Í teymisþjálfun koma saman markþjálfi – sá sem leiðir ferlið og að hámarki 15 manna teymi sem vill finna leiðina að sameiginlegum árangri & ávinningi – og hafa gagn & gaman af því um leið.

Teymismarkþjálfun miðar að því að ná eftirfarandi fram:

  • Sameiginlegir sigrar – Að ná fram bestu mögulegu niðurstöðu (ekki málamiðlun) í aðkallandi viðfangsefni (samskipti, samstarf, rekstur).
  • Stuðla að því að 1+1+1 verði miklu meira en 3 með ,,margföldunaráhrifum markþjálfunar.“
  • Tryggja að mismunandi sjónarmið fái áheyrn.
  • Stuðla að því að teymið sé samstillt, vel upplýst og líti til sömu áttar.
  • Stuðla að bættri líðan, starfshelgun og vinnugleði á vinnustað.
  • Skapa aðstæður sem hvetur einstaklinga til þess að blómstra í lífi & starfi.

Enginn getur allt, allir geta eitthvað & saman getum við fullt…

Heilsuefling – Heilsumarkþjálfun

,,Heildræn heilsufarsefling – heilsumarkþjálfun“:

Einstaklingi er fylgt eftir með markþjálfun á öllum stigum heilsufarseflingarinnar (háð þeirri leið sem viðkomandi velur).

Tilgangurinn er að auka skuldbindingu þeirra sem vilja ná tökum á heilsunni í eitt skipti fyrir öll með því að veita viðkomandi fræðslu, stuðning og aðhald. Í kjölfarið aukast líkurnar á að varanlegur árangur náist í lífsstílsbreytingarferlinu og að viðkomandi upplifi bætta líðan og betri lífsgæði.

Ráðgjöf AAT

  • Samstarfs- og samskiptaráðgjöf: Gerð samstarfs- og samskiptasáttmála á vinnustað. Skortur á upplýsingaflæði og óskýr hlutverk geta verið mikill streituvaldur á vinnustað. Samstillt teymi sem hefur sömu markmið að leiðarljósi nær frekar árangri en ella. Ráðgjöfinni er ætlað að stilla saman strengi, skerpa fókusinn og stuðla að árangursríkum samskiptum og gefandi samstarfi.
  • Leiðtogaþjálfun & valdefling stjórnenda & starfsmanna.
  • Stefnumótun fyrirtækja með skilgreiningu á markmiðum til lengri og skemmri tíma, gildum og framtíðarsýn tengt forvörnum, fræðslu og heilsueflingu á vinnustað (getur líka verið viðskiptafræðileg stefnumótun).

Græn endurhæfing

Endurhæfing sem fer fram að hluta eða mestu leyti úti í náttúrunni hefur jákvæð áhrif á líðan og árangur einstaklinga.

Heilsuvernd er í samstarfi við ColdSpot, heilsutengda ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í streitulausum ferðum þar sem núvitund, náttúrunautn og náungakærleikur er í fyrirrúmi. Ferðirnar eru frá hálfum degi upp á 14 daga. Í öllum ferðunum er meginstefið áhersla á líkamlega, andlega og félagslega heilsu. Líkamleg heilsa felst einkum í hreyfingu, s.s. gönguferðir, hjólaferðir, hestbak, sund, dans og jóga. Andleg heilsa felst einkum í fræðslu, hvatningarfyrirlestrum (e. motivational speaking) og jákvæðum innleggjum um lífið og tilveruna sem rækta sálina & sjálfið. Félagsleg heilsa felst einkum í mannrækt og gefandi samskiptum, leikjum og samveru.

Markmiðið er að skilja eftir dýrmætt veganesti í hugum & hjörtum þátttakenda.