Fara á efnissvæði
Steinunn Ragnarsdóttir

Steinunn Ragnarsdóttir

Stjórnunarráðgjafi og leiðbeinandi

FYRIRSPURN EÐA BÓKA ÞJÓNUSTU

Við leggjum áherslu á að koma á móts við þarfir hvers og eins við þjónustu og ákvörðun meðferðarúrræðis. Sendið okkur skilaboð ef þið eru með fyrirspurn eða óskið eftir að bóka tíma.

Steinunn Ragnarsdóttir hefur átt farsælan feril sem stjórnandi um árabil og starfar nú sem stjórnunarráðgjafi og leiðbeinandi. Hún heldur fyrirlestra, námskeið og vinnustofur og kemur reglulega fram á alþjóðlegum ráðstefnum þar sem hún heldur m.a. erindi um skapandi stjórnun og gagnreyndar leiðir til velferðar og árangurs.


Menntun og reynsla

Steinunn lauk meistaragráðu í píanóleik í Bandaríkjunum og stofnaði Reykholtshátíðina þegar hún kom heim úr námi.  Árið 2018 lauk hún þriggja ára Fellowship námi í skapandi stjórnun frá háskólanum í Maryland, en Steinunn var valin úr stórum hópi stjórnenda til þess að taka þátt í náminu ásamt stjórnendum frá ýmsum löndum. Hún lauk síðan Executive Leadership námi frá Harvard Business School árið eftir.

Steinunn hefur einnig lokið diplómanámi á meistarastigi í Jákvæðri sálfræði og hefur viðurkennd starfsréttindi í LEGO®SERIOUS PLAY® aðferðinni sem er skapandi leið til lausna og þróunar sem virkjar alla þátttakendur. Steinunn býður upp á fjölbreyttar vinnustofur með aðferðinni sem fyrirtæki og vinnustaðir geta bókað.

Fyrirlestrar / námskeið / Vinnustofur

  • Að líða vel í vinnunni
  • Árangursrík forysta
  • Farsæl starfslok – nýtt upphaf
  • Hvernig leiðtogi viltu vera?
  • LEGO® SERIOUS PLAY®
  • Skapandi leiðir til lausna
  • Skapandi leiðir til velferðar
  • Virkjaðu skapandi hugsun

 

Vinnustofur með LEGO® SERIOUS PLAY® aðferðinni

  • Stefnumótun í rauntíma 
  • Aukið traust í teyminu 
  • Samstilling markmiða 
  • Bætt upplýsingarflæði
  • Endurgjöf á vinnustað  
  • Birtingarmynd fyrirtækisins 
  • Bætt verkaskipting

Vinnustofurnar með LEGO®️ SERIOUS PLAY®️ aðferðinni eru sérsniðnar eftir óskum hverju sinni og hefst ferlið með viðtali til þess að skilgreina áskorun og markmið vinnustofunnar ásamt tímalengd.