Fara á efnissvæði

Stjórnandi

Steinunn Ragnarsdóttir

Alþjóðlegur ráðgjafi og leiðbeinandi

Við viljum koma á móts við þarfir okkar viðskiptavina og sérsníðum því þjónustuna og tímasetningar í samræmi við þarfir hvers og eins.

Senda fyrirspurn eða bóka fræðslu

Fjölmenning á vinnustað

Í þessum fyrirlestri er sérstaklega fjallað um helstu þætti fjölmenningar á vinnustöðum og hvernig hægt er að bregðast við þeim, fyrirbyggja áskoranir og virkja þá styrkleika sem felast í fjölbreytninni sem skapast á fjölþjóðlegum vinnustöðum.

Í fyrirlestrinum er fjallað um helstu þætti fjölmenningar á vinnustöðum og hvernig hægt er að bregðast við þeim, fyrirbyggja áskoranir og virkja þá styrkleika sem felast í fjölbreytninni sem skapast á fjölþjóðlegum vinnustöðum sem setja sér stefnu sem tekur mið af
menningarmun starfsfólksins, með velferð þeirra að leiðarljósi.

Fyrirlesturinn fjallar m.a. um:

  • Ólíka menningarheima, gildi þeirra og viðhorf
  • Staðalímyndir og ómeðvitaða fordóma.
  • Menningarlegar áskoranir í samskiptum og leiðir til úrbóta.
  • Upplýsingaflæði og stjórnun.

Ávinningur:

  • Aukið menningarlæsi og betri samskipti á vinnustaðnum.
  • Aukið umburðarlyndi og skilningur á ólíkum þörfum á fjölþjóðlegum vinnustað.
  • Aukin starfsánægja, traust og samvinna.

Fyrirlesturinn er sérsniðinn að hverju fyrirtæki og nýtist fjölþjóðlegum vinnustöðum sem vilja efla hagnýta þekkingu stjórnenda og starfsfólks, innleiða árangursríka fjölþjóðlega stefnu og skapa þannig farsæla vinnustaðamenningu.

Lengd; allt frá 45-60 mín eða samkvæmt samkomulagi.

Tímalengd 

Allt frá 45-60 mín eða samkvæmt samkomulagi.