Fara á efnissvæði

Ráðgjöf hjá næringarfræðingi

Hjá Heilsuvernd er boðið upp á einstaklingsráðgjöf hjá næringarfræðingi sem hentar vel þeim sem vilja skoða mataræði sitt, öðlast vellíðan og aukin lífsgæði.

FYRIRSPURN EÐA BÓKA TÍMA

Við leggjum áherslu á að koma á móts við þarfir hvers og eins við þjónustu og ákvörðun meðferðarúrræðis. Sendið okkur skilaboð eða hringið í síma 510-6500 til að bóka tíma.

Næringarfræðingar Heilsuverndar

Næringarfræðingar Heilsuverndar þjónusta einstaklinga og fyrirtæki þegar kemur að því að styðja við heilbrigða næringu og fræðslu.

Sérfræðiþekking næringarfræðinga er veigamikil, sem gott er að nýta til þess að öðlast betra samband við mat og matarvenjur.

Næringarfræðingar veita einstaklingsmiðaða næringarmeðferð og ráðgjöf út frá þörfum hvers og eins af reynslu, fagmennsku og í fullum trúnaði.

Undirstaða vellíðunnar og lífsgæða er góð næring!

Næringarfræðingar Heilsuverndar

Næringarfræðingar okkar eru sérfræðingar þegar kemur að næringu mannsins og þá líkamlegu, sálrænu og lífeðlisfræðilegu hætti sem mataræðið hefur áhrif á.