Fara á efnissvæði

Stjórnandi

Hugrún Linda Guðmundsdóttir

Félagsráðgjafi MA., Faglegur handleiðari og Markþjálfi.

Senda fyrirspurn eða bóka fræðslu

Stefnumótun í eigin lífi – Jákvæð sálfræði og markþjálfun

Námskeiðið hefst  4. nóvember. Þetta námskeið er fyrir þá sem vilja taka meðvitaða afstöðu til eigin lífs, ná betra jafnvægi og lifa í meiri sátt við sjálfa/n sig – í takti við eigin styrkleika, gildi og drauma. Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum, kl. 9.30 -11.30 í 4 vikur – samtals 8 skipti.

Á þessu námskeiði færð þú tækifæri til að staldra við, meta stöðuna í eigin lífi og móta skýra stefnu.

Unnið er með sálræna, félagslega og líkamlega heilsu, persónuleg gildi, lífsmynstur og styrkleika. Þú kortleggur líf þitt í dag, skoðar hvað heldur aftur af þér og hvað kveikir á drifkrafti þínum. Þú lærir að setja skýr markmið, nýta tímann betur og þróa framtíðarsýn sem byggir á innri sannfæringu og tilgangi. Námkskeiðið byggir á jákvæðri sálfræði, markþjálfun og ACT.

Þetta námskeið er fyrir þá sem vilja taka meðvitaða afstöðu til eigin lífs, ná betra jafnvægi og lifa í meiri sátt við sjálfa/n sig – í takti við eigin styrkleika, gildi og drauma.

Kennari

Hugrún Linda Guðmundsdóttir er félagsráðgjafi MA, og  markþjálfi með diplóma á meistarastigi í jákvæðri sálfræði, handleiðslu og mannauðsstjórnun. Hugrún hefur unnið mikið með fólki sem er að ganga í gegnum breytingar eða lífskreppur og þarf að móta nýja framtíðarsýn hvort sem er í einkalífi eða starfi. Einnig með fólki sem glímir við streitu og þarf að læra að staldra við og skoða lífið frá öðru sjónarhorni, huga að andlegri heilsu og almennri vellíðan.

Tímasetningar

Næsta  námskeið: 

Námskeið - 23. September /Fullbókað
Námskeið - 4. Nóvember / Laus pláss

Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum, kl. 9.30 -11.30 í 4 vikur – samtals 8 skipti (16 klst.)

Staðsetning: Heilsuvernd, Urðarhvarfi 14, 3. hæð.


Verð: 88.000 kr.

 

Nánari upplýsingar hjá Hugrúnu, hugrun@hv.is eða í síma 898-0500

Mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði, m.a. sjóðir leik -grunnskóla- og framhaldsskólakennara.

Námskeiðið er samþykkt hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóð