Fara á efnissvæði

Stjórnandi

Helga Hrönn Óladóttir

Mannauðsfræðingur og streituráðgjafi

Við viljum koma á móts við þarfir okkar viðskiptavina og sérsníðum því fyrirlestra og tímasetningar í samræmi við þarfir hvers og eins.

Senda fyrirspurn eða bóka fræðslu

Tæklum tímann, vinnustaðamenninguna og samskipti

Erindi fyrir starfsfólk vinnustaða þar sem kenndar eru aðferðir sem stuðla að bættri tímastjórnun, auka skipulagshæfni og bæta forgangsröðun og vinnustaðamenningu.

Fjallað verður um aðferðir sem stuðla að bættri tímastjórnun og forgangsröðun svo draga megi úr streitu og kulnun. 

Farið verður í tímaáætlanir og komið inn á algeng skipulagsforrit sem gagnast í daglegu lífi. Þátttakendum verður gefin betri yfirsýn yfir verkefnin sín, aukin skipulagshæfni sem og bætt forgangsröðun í starfi, námi eða daglegu lífi.

Í fyrirlestrinum er fjallað um hvernig stuðla megi að árangursríkum samskiptum innan vinnustaðar: Komið er inn á kveikju af togstreitu á vinnustað og mikilvægi vinnustaðamenningar á tímum breytinga.

Þátttakendum eru gefin ráð til að verja orku sinni á uppbyggilegan hátt sem og vernda frá neikvæðni.

Svarað verður spurningum á borð við:

  • Hvernig áætla ég tímann sem fer í hvert verkefni fyrir sig?
  • Hvað ber að varast og hverju þarf að huga að?
  • Hverjar eru algengustu afleiðingar dræmrar tímastjórnunar?
  • Hvernig set ég mér og öðrum mörk?
  • Hverjir eru helstu tímaþjófarnir og truflanir sem við upplifun? 
  • Hvað er vinnustaðamenning og hvernig má þróa hana eða breyta?

Tímalengd

30 mín. erindi (eingöngu sem fjarfræðsla)

60 mín erindi (staðar- eða fjarfræðsla)