Vinnuvernd & áhættumat
Heilsuvernd er viðurkenndur heildstæður þjónustuaðili á sviði heilsu- og vinnuverndar hjá Vinnueftirlitinu.
Hafa samband
Hafðu samband ef þú ert með fyrirspurn eða óskar eftir að bóka þjónustuna
Vinnuvernd & öryggi vinnustaða
Við stuðlum að auknu heilbrigði einstaklinga, gæðum og öryggi vinnustaða með því að koma á skipulögðu innra vinnuverndarstarfi hjá viðskiptavinum og efla þekkingu og nýja hugsun hjá stjórnendum og starfsmönnum um heilsu- og vinnuverndarmál.
Markmið öryggis- og vinnuverndarstarfs er að sérhverjum starfsmanni líði vel í vinnunni og að hver og einn fari ávallt heill heim frá vinnu.
Tilgangur
Hver er tilgangurinn með skipulögðu öryggis- og vinnuverndarstarfi?
- Góð stjórnun öryggismála felur í sér skipulagða nálgun í daglegri vinnu – framleiðni eykst í kjölfarið
- Uppfylla lög, reglur og kröfur
- Hættur við vinnuna og örugg vinnubrögð eru skilgreind
- Úrbætur eru greindar og settar í ferli
- Uppfylltar eru siðferðislegar og samfélagslegar skyldur sem snúa að því að hlúa að starfsmönnunum
- Starfsmenn geta sjálfir haft áhrif á eigið öryggi og eignast hlut í skipulagningu
- Ánægður og öruggur starfsmaður er góður starfsmaður
Heildarlausnir á sviði heilsu- & vinnuverndar
Heilsuvernd og EFLA Verkfræðistofa eru í öflugu samstarfi hvað alla þætti heilsu- og vinnuverndar snertir og getum við tryggt heildarlausnir á þessu sviði fyrir þau fyrirtæki sem eftir því leita.
Það sem skilgreinir fyrirtæki með öflugt innra starf:
- Skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði/áhættumat er til staðar og unnið kerfisbundið samkvæmt henni
- Öryggisnefnd, öryggisvörður og öryggistrúnaðarmaður eru til staðar
- Vinnuslys, óhöpp og hættutilvik eru skráð, greind og nýtt í forvarnaskyni
- Starfsmenn fá viðeigandi þjálfun og leiðbeiningar, skráning þjálfunar er til staðar
- Fyrirliggjandi eru leiðbeiningar og verklagsreglur um notkun varasamra efna og tækja
- Reglubundið eftirlit er með vélum og tækjum
- Reglulegar skoðunarferðir um fyrirtækið og öryggisþættir rýndir
- Tillit er tekið til vinnuumhverfissjónarmiða við hönnun og skipulagningu
- Utanaðkomandi aðilar eru upplýstir um kröfur fyrirtækisins m.t.t. vinnuaðstæðna og heilsuverndar
- Fulltrúi yfirstjórnenda er með í öryggisnefndinni
- Fyrirtækið aflar utanaðkomandi aðstoðar í vinnuverndarstarfinu eftir þörfum
- Fyrirtækið hefur skýra vinnuumhverfisstefnu