Fara á efnissvæði

Mannauður

Heilsuvernd byggir starfsemi sína á hæfu, áhugassömu og traustu starfsfólki sem nýtur jafnra tækifæra í öruggu, heilbrigðu og jákvæðu starfsumhverfi. 

Viltu vaxa með okkur?

Hjá Heilsuvernd og dótturfyrirtækjum starfa í dag rúmlega 500 manns og fer starfshópurinn okkar ört vaxandi.

Við leggjum áherslu á að ráða til okkar hæfa einstaklinga í öll störf og veitum tækifæri til að vaxa og þróast í starfi.

Við hlúum vel að fólkinu okkar og leggjum ríka áherslu á jákvætt andrúmsloft á vinnustaðnum og að hver einstaklingur fái notið sín í starfi, sem er í anda slagorðs Heilsuverndar „því hver dagur er dýrmætur“.   

Að starfa hjá Heilsuvernd

Hjá okkir starfar fjölbreyttur hópur starfsfólks sem hefur það að leiðarljósi að efla heilbrigði og vellíðan þjónustuþega Heilsuverndar ásamt því að veita faglega ráðgjöf og stuðning. 

Móttaka nýliða

Áhersla er lögð á að vel sé tekið á móti nýju starfsfólki strax á fyrsta degi í starfi, því það skiptir okkur miklu máli að starfsfólk upplifi sig velkomið á nýja vinnustaðinn og eigi jákvæða upplifun frá fyrsta starfsdegi.

Við viljum að allt starfsfólk sé stolt af því að vinna hjá Heilsuvernd og er lykilatriði að upplifun nýs starfsfólks sé jákvæð frá fyrsta degi í starfi. 

Nýliðamóttaka og kynning á starfsemi Heilsuverndar leggur grunninn að góðu ráðningarsambandi og jákvætt viðmót samstarfsfélaga styður við farsæla aðlögun á nýjum vinnustað. 

Logo-Heilsuvernd-tagline
Logo-heilsuvernd-heilsugaesla-midjad

JÁKVÆÐ OG UPPBYGGILEG SAMSKIPTI

Við stundum jákvæð og uppbyggileg samskipti og gætum þess að halda góðu upplýsingaflæði milli allra hluteigandi aðila. 

STERK LIÐSHEILD OG GLEÐI

Við leggjum áherslu á sterka liðsheild og gleði á vinnustaðnum og hvetjum hvort annað til árangurs. 

TIL FYRIRMYNDAR

Við bjóðum upp á gott vinnuumhverfi, samkeppnisfær kjör og fjölskylduvænt vinnufyrirkomulag, þar sem jafnvægi einkalífs og vinnu eru höfð að leiðarljósi.  

METNAÐUR Í STARFI

Hjá Heilsuvernd starfar hæft, áhugasamt og metnaðarfullt starfsfólk sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. 

FJÖLBREYTT VERKEFNI, ÞRÓUN OG NÝSKÖPUN

Við bjóðum upp á fjölbreytt verkefni og starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á faglega þjónustu, teymisvinnu, þróun og nýsköpun.

JÖFN TÆKIFÆRI

Við gætum þess að öllum standi jöfn tækifæri til boða til þekkingaröflunar, þjálfunar og þróunnar í starfi.