Fara á efnissvæði

Háls- og höfuðáverkamiðstöðin

Innan háls- og höfuðáverkamiðstöðvar Heilsuverndar vinnur þverfaglegt sérfræðingateymi með það að markmiði að greina og hlúa að höfuð og hálsáverkum.

Hafa samband

Hafðu samband ef þú ert með fyrirspurn eða vilt bóka tíma hjá Háls- og höfuðáverkamiðstöðinni

Þverfaglegt sérfræðingateymi háls- og höfuðáverkamiðstöðvarinnar

Innan háls- og höfuðáverkamiðstöðvar Heilsuverndar vinnur þverfaglegt sérfræðingateymi með það að markmiði að greina og hlúa að höfuð- og hálsáverkum. Sérfræðingateymið notfærir sér m.a. nýjustu tækni NeckCare til að ná sem allra bestum árangri.

Teymið á það sameiginlegt að það er samansett af hópi fagaðila frá fyrirtækjum í heilbrigðistækni sem öll styðjast við greininga og meðferðar tækni frá NeckCare.

K!M Endurhæfing

K!M ENDURHÆFING sérhæfir sig í sjúkraþjálfun og endurhæfingu þar sem stuðst er við nýjustu tækni og árangurstengdar mælingar sem byggðar eru á vísndalegum grunni.

Tilgangur fyrirtækisins er að hámarka árangur og getu þeirra sem treysta á sjúkraþjálfun og endurhæfingu til að ná bata eftir slys eða önnur áföll.

Heilaheilsa

Heilaheilsa þjónustar fólk sem hefur fengið væga heilaáverka, s.s. heilahristing, og fjölskyldur þeirra. Heilaheilsa veitir faglega og gagnreynda meðferð þar sem áhersla er á að nýta nýjustu þekkingu til að efla heilbrigði heilans og stuðla að bata eftir höfuðáverka.

NeckCare

NeckCare er fyrirtæki í heilbrigðistækni sem sérhæfir sig í greiningu og meðferð á hálsskaða. Verkir á hálsi eru með algengustu stoðkerfisverkjum sem fólk glímir við í dag og er ein helsta ástæða þess að fólk sækir eftir heilbrigðisþjónustu hjá sjúkraþjálfara.