Fara á efnissvæði

Háls- og höfuðáverkamóttakan

Innan háls- og höfuðáverkamóttöku Heilsuverndar vinnur þverfaglegt sérfræðingateymi með það að markmiði að greina og hlúa að höfuð og hálsáverkum.

Hafa samband

Hafðu samband ef þú ert með fyrirspurn eða vilt bóka tíma hjá Háls- og höfuðáverkamóttökunni

Háls- og höfuðáverka móttakan er samstarfsverkefni Heilsuverndar, K!M endurhæfingar og Heilaheilsu.

Markmið móttökunnar er að veita sérhæfða og árangurstengda þjónustu við einkennum háls- og höfuðáverka á einum stað. Lykillinn að árangursríkri meðferð við einkennum háls- og höfuðáverka er samhæfð nálgun í meðhöndlun einkenna.

Þverfaglegt sérfræðingateymi háls- og höfuðáverkamiðstöðvarinnar

Við höfum sérhæft okkur í mati og meðhöndlun háls- og höfuðáverka.

Á móttökunni starfar þverfaglegt teymi sjúkraþjálfara, sálfræðinga, íþróttafræðinga, heimilislækna, næringarfræðinga og markþjálfa sem vinna saman að því að veita heildstæða og einstaklingsmiðaða þjónustu. 

K!M Endurhæfing

K!M ENDURHÆFING sérhæfir sig í sjúkraþjálfun og endurhæfingu þar sem stuðst er við nýjustu tækni og árangurstengdar mælingar sem byggðar eru á vísindalegum grunni. Tilgangur fyrirtækisins er að hámarka árangur og getu þeirra sem treysta á sjúkraþjálfun og endurhæfingu til að ná bata eftir slys eða önnur áföll.

Heilaheilsa

Heilaheilsa þjónustar fólk sem hefur fengið væga heilaáverka, s.s. heilahristing, og fjölskyldur þeirra. Auk þess býður Heilaheilsa upp á meðferð við hugrænum vanda sem og almenna sálfræðiþjónustu. Heilaheilsa veitir faglega og gagnreynda meðferð þar sem áhersla er á að nýta nýjustu þekkingu til að efla heilbrigði heilans. 

HÁLS- OG HÖFUÐÁVERKAR

Háls- og höfuðáverkar, s.s. heilahristingur geta komið til vegna beins eða óbeins höggs á höfuð, andlit, háls, eða aðra líkamsparta. Flestir jafna sig innan 14 daga en aðrir glíma við einkenni í lengri tíma. Langvarandi einkenni geta haft gríðarleg áhrif á líðan og lífsgæði. Ef einkenni eru enn til staðar eftir 14 daga er mælt með að þú hafir samband við heimilislækni þinn til að fá tilvísun á háls- og höfuðáverka móttökuna.  Því fyrr sem gripið er inn í ferlið með sérhæfðri þjónustu því meiri líkur á fullnægjandi bata.

ÁHERSLUR Í MEÐFERÐ Á HÁLS- OG HÖFUÐÁVERKA MIÐSTÖÐINNI

Farið er í gegnum ítarlegt mat á einkennum háls- og höfuðáverka. Sérfræðingar í mati á einkennum og meðferð kortleggja einkenni og leggja drög að einstaklingsbundinni meðferðaráætlun. Að auki er í boði fræðsla um háls- og höfuðáverka, um einkenni, orsakir og batahorfur. Sú fræðsla er talin vera einn af lykilþáttum í árangursríkri meðferð. Fræðslan fer fram í gegnum netið og getur hver og einn sótt fræðsluna á sínum hraða.

Árangurstengd og sérhæfð sjúkraþjálfun

Viðeigandi sjúkraþálfun er ákveðin með sérfræðingum K!M endurhæfingu sem hafa sérhæft sig í hálsáverka. Þeir vinna að greiningu með Neckcare og meta jafnframt jafnvægi og samhæfingu.

Sálfræðimeðferð

Að lenda í háls- eða höfuðáverka getur verið erfið lífsreynsla og vakið upp tilfinningar eins og sorg, reiði og vanmátt. Slíkar tilfinningar eru eðlilegar strax eftir áverka en mikilvægt er að leita sér aðstoðar ef einkenni verða viðvarandi eða aukast. Kvíði og vanlíðan eru algeng vandamál eftir áverka og hamla bata. Sálfræðingar á háls- og höfuðáverkamiðstöðinni sérhæfa sig í að meðhöndla tilfinningavanda sem fylgir oft háls- og höfuðáverkum, s.s. kvíða, þunglyndi, áfallastreitu, streitu- og svefnvanda.

Hreyfing og áreynsluþjálfun

Hreyfing og áreynsluþjálfun er ein af árangursríkustu meðferðum við langvarandi einkennum heilahristings. Íþróttafræðingar framkvæma mælingar, gefa leiðbeiningar um viðeigandi hreyfingu og stýra áreynsluþjálfun. Íþróttafræðingurinn sinnir meðferð á móttökunni að Urðarhvarfi 14, en einnig í nærumhverfi skjólstæðinga og/eða í samstarfi við aðra þjálfara eða sjúkraþjálfara.