Fara á efnissvæði

Heilsuvernd ferðamanna

Heilsuvernd býður ferðamönnum upp á allar almennar og sértækar bólusetningar og ráðgjöf vegna ferðalaga erlendis. 

Hafa samband

Hafðu samband ef þú ert með fyrirspurn eða óskar að bóka bólusetningu eða ráðgjöf vegna ferðalaga erlendis.

Bólusetningar og ráðgjöf vegna ferðalaga erlendis

Ráðgjöf er veitt út frá þeim stað/landi sem ferðast er til og veittar upplýsingar um smitvarnir og forvarnir gegn sjúkdómum sem ferðamenn geta átt í hættu á að verða útsettir fyrir. 

Ráðlagt er að bóka tíma minnst 6 vikum fyrir brottför til að tryggja fulla virkni bóluefnanna og að hægt sé að endurbólusetja með þeim efnum sem þarf fleiri en einn skammt af. 

Bólusetningar sem í boði eru: 

  • Barnaveiki, stífkrampi, kíghósti 
  • Barnaveiki, stífkrampi, kíghósti og mænusótt 
  • Mænusótt 
  • Taugaveiki 
  • Mýgulusótt 
  • Lifrarbólga A 
  • Lifrarbólga B 
  • Lifrarbólga A+B 
  • Heilahimnubólga 
  • Hundaæði* - sérpöntun 
  • Japönsk Heilabólga** - sérpöntun 

Athugið að staða bóluefna í landinu er misjöfn og því getum við ekki tryggt að öll ofangreind bóluefni séu til.  

*Bólusetning gegn hundaæði eru þrír skammtar gefnir á fjórum vikum 

**Bólusetning gegn japanskri heilabólgu eru tveir skammtar gefnir á fjórum vikum.