Soffía Dóra Sigurðardóttir, sálfræðingur
Sálfræðingur og EMDR meðferðaraðili.
Soffía sinnir meðferð kvíða, depurðar og meðvirkni ásamt því að aðstoða fólk við að setja heilbrigð mörk bæði sjálfum sér og öðrum. Einnig veitir hún ráðgjöf fyrir aðstandendur geðsjúkra bæði barna og fullorðinna.
Helstu sérsvið Soffíu Dóru eru;
- EMDR áfallameðferð
- Kvíða og tilfinningaraskanir fullorðina, ungmenna og barna
- Meðvirknimeðferðir
- Starfsendurhæfing
- Ráðgjöf fyrir aðstandendur geðsjúkra fullorðinna og barna
Menntun og störf
Soffía Dóra stundaði nám við Háskólann í Reykjavík og lauk þaðan bæði BSc í sálfræði og MSc í klínískri sálfræði. Starfsnám hennar snéri að endurhæfingu fullorðinna og kvíða og tilfinningaraskana fullorðinna, barna og ungmenna.
Ásamt því að reka Sálfræðistofuna ESA þá hefur Soffía Dóra starfað sem skólasálfræðingur við Menntaskólann á Laugarvatni. Hún starfaði á Heilsugæslu Suðurlands (HSU) og hefur jafnframt unnið með Hugarafli og Birtu starfsendurhæfingu. Hún hefur haldið hópnámskeið við kvíða og hefur tekið þátt í hópnámskeiðum vegna félagskvíða, þunglyndis, og tilfinningastjórnunar ungmenna.