
Hugrún Linda Guðmundsdóttir
Félagsráðgjafi MA – Faglegur handleiðari - Markþjálfi
FYRIRSPURN EÐA BÓKA TÍMA
Tekið er á móti tímapöntunum í síma 510-6500.
Menntun og reynsla
Hugrún hefur lokið meistaranámi í félagsráðgjöf, diplómanámi í jákvæðri sálfræði, faglegri handleiðslu og mannauðsstjórnun ásamt því að vera markþjálfi. Hún er sérhæfð í streitustjórnun og seigluþjálfun og hefur öðlast kennsluréttindi í þeim fræðum frá Harvard Medical School og Benson-Henry Institute for Mind Body Medicine. Hún hefur einnig farið í gegnum kennaranám í núvitund bæði MBSR (Núvitund gegn streitu) og MBCT (Núvitund og hugræn meðferð). Hugrún er einnig Jóga Nidra kennari.
Hugrún nýtir ACT (Acceptance and Commitment Therapy/Training), jákvæða sálfræði, markþjálfun og aðrar aðferðir til að styðja og styrkja fólk í lífsins áskorunum og lífskreppum. Hún leggur áherslu á að mæta fólki þar sem það er statt hverju sinni og vinna út frá því frekar en að vera með fyrirfram ákveðinn ramma. Með virkri hlustun, samtali og stuðningi er tekið eitt skref í einu í átt að aukinni vellíðan og virkni í lífi og starfi.
Hugrún hefur margra ára reynslu af ráðgjöf, markþjálfun, handleiðslu og kennslu fyrir einstaklinga, hópa og fyrirtæki. Hún hefur rekið eigin stofu og heilsusetur í mörg ár, hefur verið úrræðaaðili fyrir VIRK og sinnt þar fólki sem er í veikindaleyfi meðal annars sökum álags í starfi. Hún vann í Geðheilsuteymi heilsugæslunnar og hefur sinnt mannauðsmálum í fyrirtækjarekstri. Hugrún var áður bæði í viðbragðsteymi og áfallateymi Rauða Krossins.
Hugrún nýtir menntun sína og reynslu til að styðja, styrkja og hjálpa fólki að vaxa og dafna í lífi og starfi. Hún einblínir á að auka vellíðan og vöxt einstaklinga og styðja hópa til vaxtar og þroska. Hún hefur mikinn áhuga á forvörnum og hvetur fólk að sinna andlegri heilsu í forvarnarskyni meðal annars til að komast hjá veikindum tengdum streitu.
Þjónusta fyrir einstaklinga
- Fagleg handleiðsla fagfólks, stjórnenda og fólks í álagstörfum
- Streituráðgjöf, streitustjórnun og álagsþol
- Markþjálfun
- ACT meðferðarvinna og þjálfun
- Samtalsmeðferð
- Stuðningur við fólk í veikindaleyfi og endurkoma til vinnu
- Áfallahjálp og áfallastuðningur
Þjónusta fyrir fyrirtæki
- Handleiðsla stjórnenda
- Hóphandleiðsla
- Ráðgjöf og uppsetning á handleiðslukerfum
- Markþjálfun
- Námskeið
- Vinnustofur
- Starfsdagar
- Forvarnarvinna gegn veikindafjarvistum og kulnun
Námskeið, vinnustofur og fyrirlestrar fyrir einstaklinga, hópa, stofnanir og fyrirtæki
Hægt er að blanda saman og sérsníða eftir óskum hvers og eins.
- Streitustjórnun og álagsþol
- Streita, vinnustreita, kulnun
- Jákvæð sálfræði – Vellíðan og virkni í lífi og starfi
- Hugarfar, heilsa og hamingja.
- Styrkleikar
- Stefnumótun í eigin lífi
- Núvitund
- Jóga Nidra
- Verkfærakista taugakerfisins
- ACT vinnustofa