Fara á efnissvæði

Kristín Ingveldur Bragadóttir, sálfræðingur

Kristín sinnir allri almennri sálfræðiþjónustu fyrir fullorðna. Helstu sérsvið Kristínar eru áföll, hugrofseinkenni, sorg og missir, langvarandi verkir, einhverfa og ADHD, þunglyndi og kvíði, árátta og þráhyggja.

Starfsreynsla Kristínar teygir sig yfir breitt svið.  Kristín, sem einnig er menntaður grunnskólakennari, hefur starfað sem sálfræðingur síðan 2006. Hún hefur m.a. starfað sem skólasálfræðingur; í grunnskólum og menntaskóla. Starfað sem sálfræðingur í:  Endurhæfingu, á heilsugæslu, Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra og á geðdeild í Noregi. Þá hefur Kristín rekið eigin stofu á Selfossi frá 2012- 2018, og starfað sem sálfræðingur á höfuðborgarsvæðinu síðan 2018: Á EMDR stofunni í Kópavogi og á Klapparstíg í Reykjavík. Einnig hefur hún haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra bæði fyrir börn og fullorðna.

Kristín sinnir í dag allri almennri sálfræðiþjónustu fyrir fullorðna.

 

Menntun

2004 - Cand.pæd.psych frá Danmarks Pædagosiske Universitet (Kaupmannahöfn).

- Hefur lokið EMDR þjálfun I og II, sem og þjálfun með partavinnu, flókin áföll og hugrof.

2012 - Lauk HAM námi í Noregi, ásamt undirbúningsári fyrir sérfræðinám.

- Hefur þar að auki lokið fjölda endurmenntunarnámskeiða og handleiðslutíma.

 

Helstu meðferðarform

  • EMDR
  • ACT
  • HAM

Helstu sérsvið:

  • Áföll
  • Flókin áföll og hugrofseinkenni
  • Sorg og missir
  • Langvarandi verkir
  • Einhverfa og ADHD, ásamt frávikum í vitsmuna og taugaþroska
  • Árátta og þráhyggja
  • Þunglyndi og kvíði