Stjórnandi
![](/media/zd2pig5z/helgahronn-serf.jpg?rxy=0.45,0.38125&width=80&height=80&v=1da52cf73164c40?format=webp)
Helga Hrönn Óladóttir
MS í Mannauðsfræðum og umdæmisstjóri Streituskólans á Norðurlandi
Við viljum koma á móts við þarfir okkar viðskiptavina og sérsníðum því fyrirlestra og tímasetningar í samræmi við þarfir hvers og eins.
![](/media/lpgf3sdj/árangursrík-samskipti-og-vinnustadamenning.png?width=850&height=567&v=1da8a5f363acb80?format=webp)
Árangursrík samskipti og vinnustaðamenning
Hvað er vinnustaðamenning og hvernig má þróa hana eða breyta? Fyrirlestur þar sem komið er inn á kveikju af togstreitu á milli starfsmanna og einnig á milli starfsmanna og stjórnenda.
Hér er á ferðinni fyrirlestur með einstaklingsvinnu þar sem hver og einn þarf að horfa inn á við. Í fyrirlestrinum er fjallað um hvernig stuðla megi að árangursríkum samskiptum innan vinnustaðar:
- Hvað ber að varast og hverju þarf að huga að?
- Hvað er vinnustaðamenning og hvernig má þróa hana eða breyta?
- Komið er inn á kveikju af togstreitu á milli starfsmanna og einnig á milli starfsmanna og stjórnenda.
- Þá er einnig rætt um breytingastjórnun og mikilvægi vinnutaðamenningar á slíkum tímamótum.
- Þátttakendum eru gefin ráð til að verja orku sinni á uppbyggilegan hátt sem og vernda frá neikvæðni og erfiðleikum.
Lengd fyrirlesturs
20 mín. erindi eða 45 mín erindi með einstaklingsvinnu