Fara á efnissvæði

Stjórnandi

Helga Hrönn Óladóttir

Mannauðsfræðingur og streituráðgjafi

Við viljum koma á móts við þarfir okkar viðskiptavina og sérsníðum því fyrirlestra og tímasetningar í samræmi við þarfir hvers og eins.

Senda fyrirspurn eða bóka fræðslu

Eflum unga fólkið okkar

Fyrirlestur þar sem markmiðið er að efla ungt fólk. Fjallað er um vinnusambandið og skyldur. Hentugt fyrir fyrirtæki sem hafa mikið af ungu fólki í starfi.

Erindinu er ætlað að gefa ungu fólki með stutta vinnusögu verkfæri til að móta eigin starfsframa. Oft á tíðum eru markmiðin óljós og fókusinn á röngum stað.

Í fyrirlestrinum talar Helga Hrönn út frá eigin reynslu á vinnumarkaði svo að fræðslan er að miklu leiti byggð á jafningjafræðslu.

  • Markmiðið er að efla ungt fólk, fjalla um það hvaða merkingu vinnusamband hefur og um leið hverjar skyldur þeirra eru.
  • Hvað þýðir það að vera framúrskarandi starfsmaður? Hvað skal varast?
  • Einnig er fjallað um streitu ungs fólks og hvernig það getur lágmarkað streituvalda sína.
  • Hentar mjög vel þeim fyrirtækjum sem hafa mikið af ungu fólki í starfi.

 

Lengd fyrirlesturs

45 mín með einstaklingsvinnu