Stjórnandi
Guðrún Katrín Jóhannesdóttir og Bragi Reynir Sæmundsson
Sendu okkur skilaboð ef þú ert með fyrirspurn eða vilt skrá þig á námskeiðið
Frá vinnu sökum streitu - Streituráð sem virka
Námskeið fyrir einstaklinga sem eru nýkomnir úr eða eru í veikindaleyfi sökum streitu og/eða kulnunar.
Námskeiðið hefst þriðjudaginn 9. apríl - skráðu þig núna!
Námskeiðið hefst fimmtudaginn 19. mars 2024
Námskeið fyrir einstaklinga sem eru nýkomnir úr eða eru í veikindaleyfi sökum streitu og/eða kulnunar.
- streitustjórnun, veikindaleyfið, “lyfseðillinn” hvað er best að gera, áhrif streitu, streituvaldar, streituvarnir, andleg og líkamleg líðan, hormónar, betri heilsa, lífsgæði, virkni, aftur til vinnu -
Fyrirkomulag námskeiðs:
4 vikna námskeið.
Kennt 4 skipti, 2 klst. í senn. Frá kl. 13:15 - 15:15.
9. apríl
16. apríl
23. apríl
30. apríl
Staðsetning:
Heilsuvernd
Urðarhvarfi 14, 1. hæð
203 Kópavogur
Efnistök námskeiðs:
- Skilgreiningar
- Undanfari of mikillar streitu/kulnunar. Hvað veldur? Litið til umhverfis og innri þátta.
- Áhrif streitu á líkama (hormónakerfið), sál og samskipti
- Streitustjórnun
- Kortlagning streitu
- Jákvæð og neikvæð streita
- Streitumerki
- Áhrif þess að fara í veikindaleyfi á hugsanir og líðan.
- Hvernig er ráðlagt að haga veikindaleyfinu?
- Jafnvægi milli virkni og hvíldar í veikindaleyfi.
- Streituvaldar og streituvarnir
- Sjálfsmildi
- Mörk í samskiptum og gagnvart sjálfum sér
- Öndun
- Núvitund
- Aftur til vinnu: Að nota fyrri reynslu og lærdóm í veikindaleyfi til að koma sterkari til baka.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að hjálpa fólki að ná betri heilsu þannig að það geti öðlast betri lífsgæði og tekið aftur þátt í fyrri virkni eins og á vinnumarkaðnum.
Verð: 71.500 kr.
Nánari upplýsingar um námskeiðið hjá tjonusta@hv.is
Athugið að stéttarfélög styrkja oft félagsmenn sína til þátttöku á ýmsum námskeiðum. Kannaðu þinn rétt hjá þínu stéttarfélagi.