Fara á efnissvæði

110 ný hjúkrunarrými og nýr íbúi svaf eins og engill

Mun létta talsvert á Landspítala. Ætlað til skammtímavistunar þar til fólk fær varanleg dvalarpláss á hjúkrunarheimilum.

Gott að heyra svona jákvæð viðbrögð frá skjólstæðingum okkar á Urðarhvarfi - Heilbrigðisráðherra segir ný hjúkrunarrými í Urðarhvarfi í Kópavogi stórt skref í að leysa vanda bráðamóttöku og heilbrigðiskerfisins í heild. 97 ára íbúa líst vel á nýju heimkynnin og segist sofa þar eins og engill. 


110 ný hjúkrunarrými og nýr íbúi svaf eins og engill

Heilbrigðisráðherra segir ný hjúkrunarrými í Urðarhvarfi í Kópavogi stórt skref í að leysa vanda bráðamóttöku og heilbrigðiskerfisins í heild. 97 ára íbúa líst vel á nýju heimkynnin og segist sofa þar eins og engill.

Til stóð að opna í Urðarhvarfi í maí, en því var flýtt, enda hefur staða bráðamóttöku Landspítala verið afar slæm síðustu vikur - sem er að mestu til komin vegna þess að aldraðir, sem hafa lokið meðferð þar fá ekki pláss á hjúkrunarheimili.

110 rými á sex hæðum
Heimilið, sem er í húsinu að Urðarhvarfi 16, er rekið af Heilsuvernd sem í dag undirritaði samning um starfsemina við Sjúkratryggingar. Það er á sex hæðum og þegar allt er tilbúið verða þar 110 rými, sem ætluð eru til skammtímavistunar þar til fólkið fær varanleg pláss á hjúkrunarheimili.

Í samningi Heilsuverndar og Sjúkratrygginga er heimild til að auka fjölda rýmanna til að mæta tímabundinni aukinni þörf með skömmum fyrirvara.

Hvert rými er með eldhúskrók og baðherbergi, sameiginlegar vistarverur eins og matsalur og setustofa eru á hverri hæð og á 1. hæðinni er iðju- og sjúkraþjálfun.

Líst vel á nýtt heimili
Fyrstu íbúarnir fluttu inn í gær, af Vífilsstöðum sem á að loka fram á sumar vegna viðgerða, einn þeirra er Karl Finnbogason, sem er 97 ára. Áður en hann var á Vífilsstöðum, dvaldi hann á Landspítala í Fossvogi, en þangað kom hann í byrjun árs.

Karl lætur vel af nýju heimkynnunum. „Þetta er það besta sem maður hefur upplifað í hálft ár,“ segir hann.

Spurður um hvernig hann hafi sofið fyrstu nóttina á nýja staðnum svarar hann: „Ég svaf eins og engill. Það er nú líkast til.“

Alma Möller heilbrigðisráðherra segir að nú bíði um 100 á Landspítala eftir að komast á hjúkrunarheimili. „Þeir voru flestir um 130. Ef ég man rétt er búið að flytja um 80 einstaklinga af Landspítala frá því um miðjan febrúar.“

Fréttin birtist á ruv.is þann 31.mars2026