Guðrún Dóra Clarke ráðin til Heilsuverndar Heilsugæslu
Það er ánægjulegt að segja frá ráðningu Guðrúnar Dóru Clarke til okkar hjá Heilsuvernd Heilsugæslu í Urðarhvarfi
1. desember 2023
Það er ánægjulegt að segja frá ráðningu Guðrúnar Dóru Clarke til okkar hjá Heilsuvernd Heilsugæslu í Urðarhvarfi. Hún mun hefja störf í mars næstkomandi og vinna markvisst að áframhaldandi uppbyggingu með okkur í heilsugæslunni og sérstaklega á Akureyri.
Guðrún er sérfræðingur í heimilislækningum, fædd og uppalin á Akureyri og stúdent frá MA. Hún lauk embættisprófi frá læknadeild Háskóla Íslands árið 2004 og sérnámi í heimilislækningum árið 2011. Hún hefur hefur verið starfandi á Heilsugæslunni á Akureyri frá árinu 2011-14 og aftur frá 2016 eftir að hafa starfað um 2 ára skeið í Noregi. Hún hefur verið kennslustjóri sérnáms í heimilislækningum hjá HSN frá árinu 2020 og staðgengill yfirlæknis.
Við hlökkum til og tökum vel á móti henni!