Heilsuvernd Heilsugæsla í Urðarhvarfi og Betri Svefn
Heilsuvernd Heilsugæsla í Urðarhvarfi og Betri Svefn eru nú í formlegu samstarfi. Sérstaklega er horft til þess að nýta SheSleep app og nýsköpun í formi meðferðar og fræðslu til kvenna með þessum hætti.
Það er ánægjulegt að segja frá því að Heilsuvernd Heilsugæsla í Urðarhvarfi og Betri Svefn eru nú í formlegu samstarfi.
Félögin munu í sameiningu vinna að því að draga úr notkun svefnlyfja og nýta til þess gagnreynd rafræn úrræði auk þess að bjóða upp á námskeið og staðbundna þjónustu.
Sérstaklega er horft til þess að nýta SheSleep app og nýsköpun í formi meðferðar og fræðslu til kvenna með þessum hætti.
Þessu til viðbótar er stefnt er að rannsókn og árangursmælingum í samstarfi við háskóla og nýta þá sérþekkingu sem félögin búa yfir.