Skjólstæðingar eru ánægðir með nýju hjúkrunarrýmin að Urðarhvarfi 16
Það gleður okkur að heyra að skjólstæðingum líði vel í nýju hjúkrunarrýmunum okkar að Urðarhvarfi 16.
Það gleður okkur að heyra að skjólstæðingum líði vel í nýju hjúkrunarrýmunum okkar að Urðarhvarfi 16. Við leggjum mikla áherslu á vellíðan, öryggi og góða umönnun – og erum þakklát fyrir þessi jákvæðu ummæli.
"Eins og maður sé í stúdíóíbúð"
Skjólstæðingur Heilsuverndar í Urðarhvarfi kveðst hæstánægður með sitt nýja hjúkrunarrými á meðan hann bíður eftir plássi á hjúkrunarheimili.
Undirritaður var í dag samningur um rekstur og þjónustu hjúkrunarrýma Heilsuverndar að Urðarhvarfi 16. Samningurinn tekur til þjónustu í 100 hjúkrunarrýmum fyrir einstaklinga með gilt færni- og heilsumat sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og bíða eftir varanlegri dvöl á hjúkrunarheimili.
Hæstánægður með biðrýmið
Fyrstu skjólstæðingarnir, alls 20 talsins, komu í gær frá hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum sem er á leið í endurbætur. Munu svo aðrir 25 skjólstæðingar leggjast inn í dag og koma fleiri í áföngum frá Landspítala á næstu dögum og vikum.
Björgvin Björnsson er einn þeirra tuttugu sem komu í gær frá Vífilsstöðum og talar vel um sinn fyrsta sólarhring í Urðarhvarfi.
„Maður bara trúði því ekki að þetta væri svona flott.“
Eins og maður sé í stúdíóíbúð“
Þú kannt vel við þig hérna á nýja staðnum?
„Mjög svo. Þetta er svo frábært fólk hérna líka. Það flutti dálítið hingað með [frá Vífilsstöðum].“
Um herbergið sitt hefur Björgin þetta að segja:
„Þetta er alveg ótrúlega flott, eins og maður sé í stúdíóíbúð.“
„Þetta er alveg til fyrirmyndar hvernig þeir hafa byggt þetta hús fyrir aldraða,“ segir Björgvin að lokum.