Við fögnum frábærum áfanga!
Í dag var undirritaður samningur um rekstur og þjónustu í 100 hjúkrunarrýmum að Urðarhvarfi 16.
Alma Möller heilbrigðisráðherra, Sigurður Helgi Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar, undirrituðu samninginn núna í hádeginu í dag um rekstur og þjónustu í hjúkrunarrýmum að Urðarhvarfi 16.
Samningurinn tekur til þjónustu í 100 hjúkrunarrýmum fyrir einstaklinga með gilt færni- og heilsumat sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og bíða eftir varanlegri dvöl á hjúkrunarheimili.
Fyrstu þjónustuþegar hafa nú þegar flutt inn og munu á næstu dögum og vikum fleiri einstaklingar með gilt færni- og heilsumat flytja inn af Landspítala.