Heilsuvernd er framúrskarandi fyrirtæki
Heilsuvernd er framúrskarandi fyrirtæki að nýju þetta árið.
Heilsuvernd er í hópi íslenskra fyrirtækja sem teljast til Framúrskarandi fyrirtækja árið 2026.
Aðeins um tvö prósent íslenskra fyrirtækja komast árlega á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki. Til þess þarf ekki aðeins að sýna fram á góðan rekstur og hagnað ár eftir ár heldur þurfa fyrirtækin einnig að standast kröfur um lánshæfi, eiginfjárhlutfall og fleiri þætti.
Þetta er afar ánægjulegur árangur sem skapast með sterkri liðsheild starfsmanna Heilsuverndar, gleði og áhuganum á að ná árangri.