Heilsuvernd er komin í bakhjarlahóp KLAK health
KLAK – Icelandic Startups er einn öflugasti stuðningsaðili nýsköpunar á Íslandi og aðstoðar um 100 sprotafyrirtæki á ári
Ánægjulegt að tilkyna að Heilsuvernd er nú komin í bakhjarlahóp KLAK - HEALTH.
KLAK – Icelandic Startups er einn öflugasti stuðningsaðili nýsköpunar á Íslandi og aðstoðar um 100 sprotafyrirtæki á ári. KLAK býður m.a. upp á ráðgjafafundi fyrir frumkvöðla, hugmyndahraðhlaup, frumkvöðlakeppnina Gulleggið, þrjá viðskiptahraðla á ári og Dafna vinnustofur fyrir styrkþega Tækniþróunarsjóðs. KLAK rekur öflugustu mentoraþjónustulandsins, KLAK VMS, með yfir 180 virkum mentorum.
Hlutverk KLAK health hraðalsins er að styðja við sprotafyrirtæki sem vinna að fjölbreyttum lausnum í heilsutækni. Hraðallinn veitir þátttakendum aðgang að sérhæfðri fræðslu, leiðsögn frá sérfræðingum og tengslum við fjárfesta og lykilaðila í nýsköpunarumhverfinu.
og Hér