Opnun biðrýma í Urðarhvarfi og Vífilsstöðum skipta sköpum
“Staðan á Landspítala varðandi sjúklinga með færni og heilsumat hefur ekki verið betri það sem af er þessari öld”
"Staðan á Landspítala varðandi sjúklinga með færni og heilsumat hefur ekki verið betri það sem af er þessari öld” er orðrétt haft eftir hjúkrunarfræðingi á útskriftarteymi Landspítala í dag. Nú liggja einungis 46 einstaklingar á spítalanum með gilt færni og heilsumat, þeir hafa ekki verið færri í manna minnum.
Það er ljóst að það hefur skipt sköpum fyrir Landspítala að opna biðhjúkrunarrými í Urðarhvarfi apríl á þessu ári. Þá hefur Heilsuvernd enduropnað Vífilsstaði eftir endurbætur sem þar fóru fram í sumar.
Alls hafa 172 einstaklingar komið í Urðarhvarf frá opnun í apríl og nú eru 36 af 48 mögulegum plássum á Vífilsstöðum fyllt á síðastliðnum vikum. Það þýðir að það hefur verið lyft grettistaki á undanförnum mánuðum í þessum málaflokki.
Ný rými sem nýst hafa á vegum Heilsuverndar á þessum 5 mánuðum eru því orðin rúmlega 160 sem að sjálfsögðu hefur breytt afar miklu.
Það er mikilvægt að benda á það sem vel er gert og ber hér að þakka frábæru starfsfólki sem vinnur baki brotnu að því að gera gagn.